Síða 1 af 1

Galaxy S6 Vandræði - hjálp 4G

Sent: Mán 15. Jún 2015 23:18
af Magni81
Sælir

Fékk mér S6 fyrir ca. einum og hálfum mánuði síðan frá Vodafone.

Tók ekki eftir því strax en hann er ekki að tengjast 4G hér á Reykjavíkursvæðinu né út á landi nema í örfá skipti. Hann er ekki einu sinni að taka 3G. Hann er samt að ná einhverri steinaldar tengingu á mobile data. Facebook og snapchat og fl. er rrrooosaleg lengi að loadast. Ég get ekki einu sinni sent video í gegnum snappið.

Ég er búinn að fara einu sinni til þeirra í vodafone og það sem þeir gerðu var að fara í mobile networks og velja network mode wcdma/gsm fara úr því, inn aftur og velja lte/wcdms/gsm. Þá tengist hann á 4G í smástund en eftir svona 5 mín þá hættir hann að ná 4G tengingu. Ég fór því aftur til vodafone og fékk þá þau skilaboð að loftnetið væri ekki að ná sambandi við þessa síma og tæknimenn vodafone væru að vinna í þessum málum.

Það sem mig langar að vita er, ef þetta eru loftnetið þá hljóta fleiri að vera í þessum vandræðum??? hvað segið þið sem eruð með þessa síma? náið þið alltaf 4G ??? ég er með sim frá vodafone

Re: Galaxy S6 Vandræði - hjálp 4G

Sent: Mán 15. Jún 2015 23:26
af nidur
Mér finnst að þegar ég sé á ferðinni þá sé hann að skipta á milli 4G, 3G og 2G?(GSM) of oft í leit að bestu tengingunni og þar af leiðandi of mikið að missa tenginguna.

Annars er 4G bara stöðugt þegar ég er á sama staðnum.

Re: Galaxy S6 Vandræði - hjálp 4G

Sent: Þri 16. Jún 2015 05:08
af Snorrmund
Ég er með mánaðargamlan S6 ca og hjá Vodafone líka. Er reyndar ekki staðsettur í rvk en skv kortinu þeirra yfir þjónustusvæði þá ætti ég að vera á 4G. Fyrst þegar að ég keypti símann þá fannst mér ég alltaf vera tengdur 4G en svo hefur það minnkað svoldið, er samt í 90% tilfella tengdur Wi-Fi þannig að ég fylgist ekki nóg með þessu.

Re: Galaxy S6 Vandræði - hjálp 4G

Sent: Þri 16. Jún 2015 07:32
af stebbz13
Magni81 skrifaði:Sælir

Fékk mér S6 fyrir ca. einum og hálfum mánuði síðan frá Vodafone.

Tók ekki eftir því strax en hann er ekki að tengjast 4G hér á Reykjavíkursvæðinu né út á landi nema í örfá skipti. Hann er ekki einu sinni að taka 3G. Hann er samt að ná einhverri steinaldar tengingu á mobile data. Facebook og snapchat og fl. er rrrooosaleg lengi að loadast. Ég get ekki einu sinni sent video í gegnum snappið.

Ég er búinn að fara einu sinni til þeirra í vodafone og það sem þeir gerðu var að fara í mobile networks og velja network mode wcdma/gsm fara úr því, inn aftur og velja lte/wcdms/gsm. Þá tengist hann á 4G í smástund en eftir svona 5 mín þá hættir hann að ná 4G tengingu. Ég fór því aftur til vodafone og fékk þá þau skilaboð að loftnetið væri ekki að ná sambandi við þessa síma og tæknimenn vodafone væru að vinna í þessum málum.

Það sem mig langar að vita er, ef þetta eru loftnetið þá hljóta fleiri að vera í þessum vandræðum??? hvað segið þið sem eruð með þessa síma? náið þið alltaf 4G ??? ég er með sim frá vodafone

Ég er hjá símanum og ég keypti s6 hjá þeim og ég er að lenda í sama veseni með símann minn

Re: Galaxy S6 Vandræði - hjálp 4G

Sent: Þri 16. Jún 2015 20:16
af Freysism
Er með s6 edge hjá nova og ég er eiginlega alltaf með 4G, held að það hafi komið upp 2-3 sinnum E merkið en annars skiptist það á milli 4G og 3G og ég er að vinna útum allan bæ.

Re: Galaxy S6 Vandræði - hjálp 4G

Sent: Þri 16. Jún 2015 21:07
af stebbz13
síminn hjá mér er líka alltaf að hoppa á milli 4g og 3g en þegar að hann er á 3g þá virkar netið bara alls ekki, er einhver hérna sem er með útskýringu á því?

Re: Galaxy S6 Vandræði - hjálp 4G

Sent: Mið 17. Jún 2015 01:16
af Snorrmund
Komst ekkert í að skoða stillingarnar í símanum hjá mér fyrr en áðan. En það þurfti að velja lte/wcdms/gsm hjá mér. Skrýtið þar sem að fyrst þegar að ég fékk símann þá var hann oft að tengjast inn á 4G. Spurning hvort að stillingin hafi breyst við eitthvað update.

Re: Galaxy S6 Vandræði - hjálp 4G

Sent: Mið 17. Jún 2015 01:36
af Magni81
ég ræddi aftur við Vodafone í dag og ég fæ nýjan síma á fimmtudaginn frá þeim. Nú er minn sími gallaður ekki loftnetin. Þeir sögðu að þetta væri ekki fyrsti síminn með þetta vandamál..

Re: Galaxy S6 Vandræði - hjálp 4G

Sent: Mið 17. Jún 2015 05:50
af Bengal
Fékk s6 edge hjá vodafone í apríl og fékk nýjann fyrir uþb. mánuði síðan sökum þess að hann sleit sífelt símtölum og stundum ekki hægt að hringja úr honum. Minnir að 4g hafi samt verið að virka en þó ekki vel.
Virkar vel í edge sem ég fékk í staðinn.
Klárlega einhverjir símar í umferð með gallaðann móttakara o.fl.