Síða 1 af 1

Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Sun 17. Maí 2015 14:33
af Snorrmund
Hæhæ, er núna fyrst með síma sem styður þráðlausa hleðslu(Samsung S6) og þá er orðið svoldið spennandi að prufa að vera með þráðlaus hleðslutæki. Er einhver mikill munur á þessum tækjum ? Finnst official Samsung hleðslutækið vera pínu of speisað, Finnst þetta reyndar pínu töff, en eru þessi Ikea hleðslutæki eitthvað verri en hver önnur? Getiði nokkuð bent mér á einhver fleiri sem eru til sölu hérna.

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Sun 17. Maí 2015 17:50
af arnarj
Klárlega í fínu lagi að kaupa græju í þetta á aliexpress, t.d. http://www.aliexpress.com/item/Black-QI ... 17939.html

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Sun 17. Maí 2015 23:23
af nidur
Ég ákvað að versla þetta hérna
http://www.amazon.com/gp/product/B00H9B ... UTF8&psc=1

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Sun 17. Maí 2015 23:51
af Moldvarpan
Svona án þess að þekkja þetta, fer þetta ekki illa með batteríið? Þegar hleðslan verður stöðugt fyrir truflunum ef síminn hringir t.d. og hann er tekinn upp? Eða Facebook skilaboð pípa?

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Mán 18. Maí 2015 00:37
af Viktor
Moldvarpan skrifaði:Svona án þess að þekkja þetta, fer þetta ekki illa með batteríið? Þegar hleðslan verður stöðugt fyrir truflunum ef síminn hringir t.d. og hann er tekinn upp? Eða Facebook skilaboð pípa?

Þetta var vandamál með rafhlöður fyrir 15 árum, ekki í dag.

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Mán 18. Maí 2015 08:30
af Moldvarpan
Þú ert stórlega að ýkja.

Ef þú lest review um þessa tækni, þá hefur allt kosti og galla.

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Mán 18. Maí 2015 08:41
af KermitTheFrog
Mér finnst þessi þráðlausa hleðsla vera alveg svakalegt gimmick. Ef þú fræsir undan borðplötunni þinni og kemur þessu fyrir þar og gengur almennilega frá því þá, jújú, er alveg kúl að leggja símann á borðið og hann bara hleðst.

En þú þarft að leggja simann alveg rétt á hleðslustöðina, hann hleðst hægar, hitmar meira og þú getur ekki notað hann á meðan hann er í hleðslu. Hver er ávinningurinn?

Ég keypti mér eitthvað þráðlaust hleðslutæki og adapter fyrir símann minn einhverntímann í fyrra. Hef aldrei notað þetta til að fullhlaða símann.

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Mán 18. Maí 2015 09:25
af Viktor
Moldvarpan skrifaði:Þú ert stórlega að ýkja.

Ef þú lest review um þessa tækni, þá hefur allt kosti og galla.

Um hvað ertu að tala? Það fer ekki illa með nútímarafhlöður að taka þær úr hleðslu.

KermitTheFrog skrifaði:Mér finnst þessi þráðlausa hleðsla vera alveg svakalegt gimmick. Ef þú fræsir undan borðplötunni þinni og kemur þessu fyrir þar og gengur almennilega frá því þá, jújú, er alveg kúl að leggja símann á borðið og hann bara hleðst.

En þú þarft að leggja simann alveg rétt á hleðslustöðina, hann hleðst hægar, hitmar meira og þú getur ekki notað hann á meðan hann er í hleðslu. Hver er ávinningurinn?

Ég keypti mér eitthvað þráðlaust hleðslutæki og adapter fyrir símann minn einhverntímann í fyrra. Hef aldrei notað þetta til að fullhlaða símann.

Hljómar eins og mjög fínt stuff til þess að hafa á náttborðinu hjá sér. Svona án gríns, hvað er maður lengi að læra að leggja hann rétt á dokkuna? Eina og hálfa mínútu?

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Mán 18. Maí 2015 09:42
af KermitTheFrog
Sallarólegur skrifaði:

Það tekur kannski innan við 3 sekúndur að seilast eftir snúrunni og stinga símanum í samband. IMO þá hljómar þetta eins og lausn við vandamáli sem er ekki til.

Þetta hljómar alveg vel til þess að hafa á náttborðinu hjá sér, ég skil það alveg. Ég hélt það alveg þangað til ég fékk mér svona.

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Mán 18. Maí 2015 10:20
af berteh
Ikea er nú farið að selja þráðlausa hleðslu líka :)

http://www.ikea.is/search?utf8=%E2%9C%9 ... e%C3%B0sla

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Mán 18. Maí 2015 10:21
af dori
berteh skrifaði:Ikea er nú farið að selja þráðlausa hleðslu líka :)

http://www.ikea.is/search?utf8=%E2%9C%9 ... e%C3%B0sla
Hefðirðu lesið fyrsta innleggið þá hefðirðu séð að þráðarhöfundur var einmitt að velta þessu Ikea dóti fyrir sér.

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Mán 18. Maí 2015 10:44
af Viktor
KermitTheFrog skrifaði:Það tekur kannski innan við 3 sekúndur að seilast eftir snúrunni og stinga símanum í samband. IMO þá hljómar þetta eins og lausn við vandamáli sem er ekki til.

Þetta hljómar alveg vel til þess að hafa á náttborðinu hjá sér, ég skil það alveg. Ég hélt það alveg þangað til ég fékk mér svona.

Já, maður þarf líklega að prufa þetta til þess að átta sig betur á þessu, en þessi tækni mun þróast eins og önnur, og ég fagna öllu sem færir okkur nær þráðlausum lífstíl \:D/

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Mán 18. Maí 2015 22:33
af nidur
Ég sá einmitt fyrir mér að þetta væri hentugt í vinnunni, leggja símann á þetta þegar hann er ekki í notkun og hlaða hann í rólegheitum.

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Fim 13. Des 2018 17:06
af elri99
Einhver reynsla komin á þessi tæki? Með hverju mæla menn?

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Fim 13. Des 2018 18:52
af littli-Jake
elri99 skrifaði:Einhver reynsla komin á þessi tæki? Með hverju mæla menn?

Er ekki viss hvort að maður á að lýsa ánægju eða undrun að einhver sé að vekja upp 3 ára gamlan þráð fyrir þetta málefni í staðinn fyrir að gera nýjan

Re: Þráðlaus hleðslutæki.

Sent: Fim 13. Des 2018 22:43
af jonsig
Ég nota þetta ekki.
1.hiti=batterí slátrari (á við um öll batterí)

2.léleg nýtni