Síða 1 af 1

2ja vikna gamall LG G2 sími og vökvatjón

Sent: Lau 29. Mar 2014 03:41
af win8addict
Sælir allir saman.

Ég fjárfesti í nýjum LG G2 síma fyrir rétt rúmum tveimur vikum síðan, en varð síðan fyrir þín bévítans óláni í kvöld að það helltist yfir hann vökvi. Þetta var reyndar örlítið magn, en núna heyrist aðeins í hátalaranum á símanum á lægsta styrk sem og að þegar þú talar í símann að þá heyrist aðeins í viðmælandanum á lægsta styrk.

Hvað tryggingamál varðar, þá var ég að velta því fyrir mér hvort þið vissuð hvort tjón sem þetta væri undir einhverjum kringumstæðum bætt? Heimilistryggingin er F+ nr. 2 ásamt innbúskaskótryggingu. Í tryggingaskilmálunum er þess hvergi getið að vökvatjón fyrirgeri rétti til bóta - en það er hins vegar það sem maður hefur heyrt í tíma og ótíma að vökvaskemmdir séu aldrei tryggðar (nema með sérstökum tryggingum þess efnis).

Vitið þið eitthvað um hvernig þessum málum er háttað? Allar ábendingar eru afskaplega vel þegnar.

Kkv.,
w8a

Re: 2ja vikna gamall LG G2 sími og vökvatjón

Sent: Lau 29. Mar 2014 09:43
af beggi83
ég Lendi í að brjóta skjáinn minn á LG G2 síðustu helgi og fór með hann í tryggingar. Sjálfsábyrgðin var 27 þúsund hjá mér og ég fékk þetta lagt inn á mig samdægurs. eini munurinn hjá mér núna var með 32 fór í 16 gb síma grædddi meira segja 120 krónur á því :)

Re: 2ja vikna gamall LG G2 sími og vökvatjón

Sent: Lau 29. Mar 2014 17:57
af Swooper
Hérna er brjáluð hugmynd: Talaðu við tryggingafélagið þitt og spurðu þá að þessu.

Re: 2ja vikna gamall LG G2 sími og vökvatjón

Sent: Lau 29. Mar 2014 18:02
af gullielli
Swooper skrifaði:Hérna er brjáluð hugmynd: Talaðu við tryggingafélagið þitt og spurðu þá að þessu.


mind. blown.

Re: 2ja vikna gamall LG G2 sími og vökvatjón

Sent: Lau 29. Mar 2014 22:18
af guztiZ87
beggi83:
mætti ég spyrja þig hjá hverjum þú ert með tryggingarnar þínar?

Re: 2ja vikna gamall LG G2 sími og vökvatjón

Sent: Sun 30. Mar 2014 00:13
af beggi83
venjuleg heimilistrygging á að dekka svona! Tm gerir það alla vega :)

Re: 2ja vikna gamall LG G2 sími og vökvatjón

Sent: Sun 30. Mar 2014 02:17
af dori
Ég veit að þetta er hugsanlega of seint en... Slökktu á símanum.

Þegar það fer vökvi á raftæki (sem eru ekki hönnuð til að þola það) þá áttu að slökkva á þeim og leyfa þeim að þorna. Fínt að setja í skál með hrísgrjónum þar sem þau draga í sig raka og á heitan stað.

Gefa tækinu 1-2 daga og sjá svo til.

Það getur vel verið að þetta lagist hjá þér ef þú gerir þetta núna (jafnvel ef þú gerir þetta ekki, hátalarar eru viðkvæmir fyrir vökva en eru samt ekkert endilega að eyðileggjast, verða bara wonky).

Ef vökvinn er eitthvað annað en vatn þá ætti að skola tækið eftir að þú tekur rafhlöðuna úr því.