Síða 1 af 1

Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 01:02
af beatmaster
Ég er að klofna hérna, hvað á ég að fá mér (hallast meira að S4 og það böggar mig að bakk takkinn sé ekki hægra meginn á LG símanum)

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 01:11
af Tesy
Galaxy S4 er auðvitað aðeins betri sími overall og síminn kostar líka næstum helmingin meira í US en aðeins 20k hérna á landi. Ástæðan afhverju fólk kýs Nexus 5 frekar er útaf software-inu og hönnunin.

Ég til dæmis hata TouchWiz og myndi þess vegna frekar velja Nexus 5. Auðvitað er hægt að roota og gera stöff til að breyta S4 líka en það er annað mál.

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 01:18
af Swooper
Með réttu ROMi geturðu stillt uppröðun á softkeys, svo ef þú ert tilbúinn að standa í svoleiðis þá er það ekki vandamál. Fyrir utan það að það er enga stund að venjast, ég hef átt SGS2 í tvö og hálft ár (back takkinn hægra megin), kærastan mín var að fá sér LG Optimus L7 II (back takkinn vinstra megin) um daginn og ég ruglaðist bara í svona fyrstu tvö skiptin sem ég fiktaði í honum.

Er annars að bíða eftir mínum Nexus 5 sjálfur (32GB útgáfunni, hún ætti vonandi að koma á næstu dögum), dauðleiðist TouchWiz og Samsung almennt og mér finnst Galaxy S línan hundljót eftir S2, svo ég er ekki beint hlutlaus hérna :P

Edit: Off topic, en ég var að taka eftir undirskriftinni hjá OP, djöfull er ég sáttur með hana =D> Það böggar mig svo óendanlega mikið þegar fólk ruglar þessum orðum saman...

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 02:09
af BO55
En afhverju ekki að fara í enn betri síma: LG G2? Þar er t.d. hægt að breyta uppröðun á "tökkunum" eins og þú villt.

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 02:33
af Nördaklessa
S4+

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 08:10
af beatmaster
Ég tek það fram að ég myndi fá mér S4+
Er mikill munur á Samsung S4+ og venjulega S4

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 08:38
af audiophile
Ekki Nexus 5.

LG G2 eða S4+

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 09:08
af ponzer
Bakk takkinn er hægra megin á N5, ert að fá betri örgjörva í N5 Snapdragon 800 vs 600 í S4. Svo í softwarei þá ertu laus við Touchwiz og þú færð allar uppfærslurnar strax í N5 en þarft að bíða í marga mánuði efir að Samsung uppfæri.. Mitt atkvæði fer á N5

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 09:08
af thehulk
Nexus 5 hiklaust... Maður fær nýjustu uppfærslurnar, compability virkar alltaf með Nexus og frábær skjár

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 09:11
af kthordarson
s4 með cyanogenmod eða paranoidandroid

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 09:44
af agust1337
Villtu fá stöðug ný updates frá Google eða villtu bíða?
Nexus 5 ef þú villt vera með allt svona latest og ef þú ert að spá í nokkuð ódýrum síma
Galaxy S4 ef þér er svo sem alveg sama og ef þér langar að eiga nokkuð high-quality síma

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 09:44
af Benzmann
bíddu í nokkra mánuði og fáðu þér Galaxy S5, hann kemur í Mars/apríl, sá sími mun valta yfir alla aðra á markaðinum

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 09:52
af C3PO
beatmaster skrifaði:Ég tek það fram að ég myndi fá mér S4+
Er mikill munur á Samsung S4+ og venjulega S4


S4+https://vefverslun.siminn.is/vorur/simtaeki/farsimar/samsung_galaxy_s4_plus/#pv_12300

S4+ er með Quad-core 2.3 GHz Krait 400.

S4 https://vefverslun.siminn.is/vorur/simtaeki/farsimar/samsung_galaxy_s4/#pv_12090

S4 er með Quad-core 1.9 GHz Krait 300.

Svo væntanlega eitthvað smá meira sem að ég hef ekki skoðað. :)

Kv.

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 12:12
af hfwf
Nú á ég s4+ og rom communityið er ekki komið á fullt flug á þeim síma, þannig ef þú ert að hugsa um að kaupa þér síma til þess að skipta um rom fáðu þér á allt annað en þessa 2 síma. (mitt álit) Myndi aldrei kaupa LG síma sama þótt það sé g2 eða NexusX, myndi skoða HTC eða Samsung, en þetta er smekksatriði. Cameran á LG nexusinum er drasl , LG sparaði til við framleiðslu símans og kemur það illa niður á símanum, ég er mjög sáttur við minn s4+, það er komið rooted stock rom á hann 4.2.2 og 4.3 er í vinnslu. Þessi sími er búnað taka við af i9505. Svo kemur s5 nátturulega í mars/apríl líkega 5.25" skjár ásamt LTE-A og talað um augnskanna( tilgangslausa draslið- ásamt fingrafaraskannanum sem kom á ifone). Eins og oft áður smekksatriði, man ekki nákvæmlega hvaða HTC sími það var en hann er með töluvert betri myndavél en s4, þó er myndavélin í s4 ekkert slor.

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 13:11
af I-JohnMatrix-I
Why no HTC ONE? Besti sími sem ég hef átt!

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 15:04
af Minuz1
hfwf skrifaði:Nú á ég s4+ og rom communityið er ekki komið á fullt flug á þeim síma, þannig ef þú ert að hugsa um að kaupa þér síma til þess að skipta um rom fáðu þér á allt annað en þessa 2 síma. (mitt álit) Myndi aldrei kaupa LG síma sama þótt það sé g2 eða NexusX, myndi skoða HTC eða Samsung, en þetta er smekksatriði. Cameran á LG nexusinum er drasl , LG sparaði til við framleiðslu símans og kemur það illa niður á símanum, ég er mjög sáttur við minn s4+, það er komið rooted stock rom á hann 4.2.2 og 4.3 er í vinnslu. Þessi sími er búnað taka við af i9505. Svo kemur s5 nátturulega í mars/apríl líkega 5.25" skjár ásamt LTE-A og talað um augnskanna( tilgangslausa draslið- ásamt fingrafaraskannanum sem kom á ifone). Eins og oft áður smekksatriði, man ekki nákvæmlega hvaða HTC sími það var en hann er með töluvert betri myndavél en s4, þó er myndavélin í s4 ekkert slor.


Ég er hundóánægður með myndavélina á S4, ef það eru góð birtuskilyrði, þá er hún frábær en um leið og dimma fer, þá er þörf á flóðlýsingu.
HTC One gerði þetta miklu betur að mínu mati.
Bloatware-ið var frekar pirrandi í byrjun, en fullt af góðu bloatware líka.

En ég veit fyrir víst að þessi sími mun duga mér í 5 ár uþb, vélbúnaðurinn er gífurlega góður.
Ég mun fara að leika mér með roms seinna meir þegar ábyrgðin dettur úr gildi.

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 17:51
af intenz
Bíða eftir Galaxy S5? :D

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 17:54
af worghal
ég vill koma sem flestum frá því að kaupa eitthvað frá LG [-X

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 18:03
af Tesy
intenz skrifaði:Bíða eftir Galaxy S5? :D


Já, hef heyrt að síminn verður kynntur í febrúar.

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 18:37
af Swooper
worghal skrifaði:ég vill koma sem flestum frá því að kaupa eitthvað frá LG [-X

Vandamálið við LG síma hefur samt, að því er ég best veit, alltaf verið hugbúnaðurinn en ekki vélbúnaðurinn, right?

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 18:39
af worghal
Swooper skrifaði:
worghal skrifaði:ég vill koma sem flestum frá því að kaupa eitthvað frá LG [-X

Vandamálið við LG síma hefur samt, að því er ég best veit, alltaf verið hugbúnaðurinn en ekki vélbúnaðurinn, right?

http://www.informationweek.com/security ... id/1112755

hver veit nema þeir séu að njósna í fleiri tækjum?

Re: Galaxy S4 eða LG Nexus 5

Sent: Þri 14. Jan 2014 22:32
af intenz
worghal skrifaði:
Swooper skrifaði:
worghal skrifaði:ég vill koma sem flestum frá því að kaupa eitthvað frá LG [-X

Vandamálið við LG síma hefur samt, að því er ég best veit, alltaf verið hugbúnaðurinn en ekki vélbúnaðurinn, right?

http://www.informationweek.com/security ... id/1112755

hver veit nema þeir séu að njósna í fleiri tækjum?

Nákvæmlega, ein af þeim ástæðum af hverju ég mun seint versla LG.