Síða 1 af 1

Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fim 13. Jún 2013 18:42
af Arnarmar96
Sælir, ég vil fá YKKAR rök yfir þessu, svo ég kem með þetta herna :

IOS vs Android. Afhverju iOS/Android, gallar og ekki gallar (kann ekki islensku)
Galaxy 4 vs Iphone 5? (sama og fyrir ofan)
Samsung VS Apple? megið koma með allt sem þið vitið herna, hvor var að herma eftir hverjum og alles :D (er i rökræðingarkeppni við félaga minn, semsagt hann er apple boy, og ég er svona android fanboy) :D

Þakka fyrifram og engin Skítaköst takk :D

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fim 13. Jún 2013 18:51
af demaNtur
Mynd

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fim 13. Jún 2013 21:49
af thehulk
Þú ert að bera saman 2 mjög ólíka síma. Galaxy S4 miðast við nýjustu kynslóð af símum. Þú ættir frekar að reyna miða S3 á móti iphone 5

http://www.youtube.com/watch?v=NL-0EFkA6Xg

Horfið bara á þetta video "félagar" og það er ekkert meira um þetta að segja

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fim 13. Jún 2013 22:28
af BugsyB
Frábært video og hann meikar mikinn séns

Sent from my GT-I9505 using Tapatalk 2

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fim 13. Jún 2013 23:26
af eythor511
semsagt android er betri?

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 04:40
af Arnarmar96
Mig langar að fá YKKAR álit á þessu :D, ég skaut á galaxy s4 hjá símanum, á von á honum í dag (14.) eða (17.) Vonandi í dag :p

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 08:53
af audiophile
Báðir góðir símar/snalltæki. Ég er hrifnari af frelsinu sem Android veitir frekar en takmörkunum sem Apple býður þér. Svo er það auðvitað stærðarmunur á þeim. S4 er töluvert stærri.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 10:28
af Moquai
eythor511 skrifaði:semsagt android er betri?

S4 er betri á blaði heldur en iPhone 5

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 11:59
af oskar9
Iphone er bara svo sniðugur fyrir þá tækniheftu þar sem maður getur ekki gert neitt af sér, t.d. einhverjar vinkonur mínar sem ákváðu að fá sér android frekar en Iphone og svo lenda þær í einhverju veseni með símann og fá mig til að kíkja á hann, sumir þeirra eru allveg í ruglinu því fólk kann ekkert á þá, kveikt á hinum og þessum óþarfanum og maður er lengi að laga til og redda svona ýmsu fúski.
Get alls ekki mælt með þessu kerfi fyrir einhvern sem notar bara hringja, sms, myndavél og facebook og snapchat og kemur sér í voða um leið og hann opnar menu hnappinn, sjálfur er ég Android maður en ég passa mig á því hverjum ég mæli með þeim við :happy

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 12:52
af razrosk
iOS er meira user friendly, myndi aldrei mæla með android ef t.d. afi eða amma mín væri að fara fá sér snjallsíma..

Farðu bara á phonearena.com, þar geturu fundið pístla um marga X VS X síma.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 15:25
af hfwf
razrosk skrifaði:iOS er meira user friendly, myndi aldrei mæla með android ef t.d. afi eða amma mín væri að fara fá sér snjallsíma..

Farðu bara á phonearena.com, þar geturu fundið pístla um marga X VS X síma.

Algjörlega, iFone er f yrir kvenmenn og gamalmenni. og vell tæknihefta svosem. Hinsvegar ráðlagði ég mömmu að fá sér sgs3 kom ekki til greina að leyfa henni að epla sig upp :) ( biased much? ) :D

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 15:34
af GuðjónR
Er ekki Android vs iOS svipað og Win vs MacOSX? Spurning um smekk?

Ég er með iPhone af því að hann syncar sig vel við hinar Apple vörurnar sem ég á.
Væri samt til í að prófa einhverntíman Android til þess að fá samanburðinn og þá um leið sjá hvort ég sé að missa af einhverju.
Tek undir það að iPhone er örugglega góður fyrir tækniheftar gamlar konur þar sem útilokað er að klúðra nokkru.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 15:40
af AntiTrust
Varla nokkur möguleiki að svara þessari spurningu á marktækan máta. Þetta er eins og spyrja fólk hvort klassísk tónlist eða hiphop sé betri. Smekksatriði út í gegn, sitthvort tækið/OSið hentar vel og illa, allt eftir notandanum og meginhlutverki.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 15:41
af dori
Einn hlutur sem er bæði kostur og galli er að application eru ekki jafn heft á Android og iOS. Kostur af því að þá er hægt gera forrit eins og Já.is nafnabirti. Galli af því að illa hönnuð forrit geta t.d. drepið rafhlöðuna þína með því að vera með einhverja keyrslu í bakgrunni án þinnar vitneskju.

Almennt er ég hlynntur því að hafa hlutina opna (ég vil ekki að einhver gæi í Cupertino ráði því hvaða fítusa ég vil geta nýtt mér) en þá þarf gegnsæi fyrir notandann þannig að hann geti séð hvað hlutirnir eru að gera og sett forritum takmörk (meira en þetta permission módel býður uppá).

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 15:52
af GuðjónR
dori skrifaði:Einn hlutur sem er bæði kostur og galli er að application eru ekki jafn heft á Android og iOS. Kostur af því að þá er hægt gera forrit eins og Já.is nafnabirti.

Sammála, eina sem virkilega vantar í iPhone það er ja.is nafnabirtirinn.
Tæknilega er ekkert vandamál að forrita hann fyrir iPhone, það er víst brot á einhverri persónuverndarstefnu Apple, en það hljómar kaldhæðnislega þar sem Apple er eitt af nefndum fyrirtækjum sem njósna um fólk fyrir NSA og CIA.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 16:19
af dori
GuðjónR skrifaði:

Tæknilega séð er líka ekkert vandamál að forrita t.d. forrit sem tekur upp öll samtöl og fleira skemmtilegt (sem menn virkilega vilja gera og redda sér bara öðruvísi núna). Apple eru bara með lokaða og opna API sem þeir tékka svo á hvort þú sért að nota í forritinu áður en því er hleypt á App Store. Hvað þeir kalla ástæðurnar fyrir því að þeir leyfa ekki þessa API (persónuverndarstefna, platform consistency etc.) skiptir þannig séð ekki öllu máli.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 19:17
af holavegurinn
S4 er betri á pappírum, sammála því. En fyrir nokkrum mánuðum var ég algjör android maður í gegn.
Kallaði iphone drasl og sagði að það væri ekkert hægt að gera í því.

Eg keypti ipad mini i nóvember fyrir kærustuna og fannst hann alveg frekar töff, aldrei neitt lagg eða vesen með öpp eins og oft gerðist hjá mér í android.

Í febrúar fékk hún sér svo iphone 5 þannig að eg 'eignaði' mér ipadinn því hún var aldrei í honum.
Allt í einu datt mér í hug að jailbreika ipadinn, var búinn að heyra að með aðferðum væri hægt að fá paid öpp frítt, og líka bara breyta bókstaflega öllu!

Fyrir jailbreik fannst mér iOS ekkert spes, allt bara eins hjá öllum og hrátt. En þegar eg jeg jailbreikaði opnuðust dyr að nýjum heim, heim sem gerði bæði ipad mini tölvuna og iphone 5 af myndarlegustu og bestu tölvum sem ég hef verið með.

Það er hægt að fá svo mikið af tweakum að maður getur ekki ímyndað sér það. Ef þér finnst einhvað pirrandi við tækið þitt þá eru svona 97% líkur á því að þú getir fundið snilldar solid workin tweak sem lagar þetta fyrir þig \:D/

En heads up þá eftir 2 vikur í jailbreikuðum ipad mini og iphone 5 get ég ekki hugsað mér að kaupa annað en iOS

Öll öpp og allt virkar svo tipp topp og bara frábært.

En eins og ég segi venjulegur verksmiðju iphone5 er no no no, nema fyrir flestar stelpur og þá sem vilja hafa hlutina mjög einfalt.
Jailbreikad iOS er samt skíturinn :happy

Er ekki búinn að lesa yfir póstinn minn þannig að afsakið ef þetta er ekki í samhengi :x

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 20:09
af Swooper
holavegurinn skrifaði:Jailbreikad iOS er samt skíturinn :happy

Really? Ég hef ekki fundið neitt sniðugt til að nota það í. Akkúrat núna er ég með iPad 1, með Cydia, en núll virkum tweaks af því að ég fann engin gagnleg. Kannski off topic fyrir þennan þráð, en ég væri til í að sjá þráð með meðmælum fyrir Jailbreak tweaks.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Fös 14. Jún 2013 20:49
af holavegurinn
Swooper skrifaði:
holavegurinn skrifaði:Jailbreikad iOS er samt skíturinn :happy

Really? Ég hef ekki fundið neitt sniðugt til að nota það í. Akkúrat núna er ég með iPad 1, með Cydia, en núll virkum tweaks af því að ég fann engin gagnleg. Kannski off topic fyrir þennan þráð, en ég væri til í að sjá þráð með meðmælum fyrir Jailbreak tweaks.

youtube is your friend ;) en já spurning hvort maður fari í það :sleezyjoe

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Lau 15. Jún 2013 11:43
af Oak
Jailbreak er alveg nauðsynlegt á iOS en það er verst að að er bara tómt vesen frá iPhone 4S að jailbreak-a. Þ.e.a.s. alltof mikil bið eftir nýju jailbreak-i.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Lau 15. Jún 2013 12:39
af Tiger
Þannig að IOS er bara fyrir stelpur og tæknifatlaða? Gott að vita.

Fínt að sjá að rökin og þröngsýnin hafi ekki náð tökum á notendum hérna ennþá.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Lau 15. Jún 2013 14:30
af BjarniTS
Þegar þið talið um að ios sé svo lokað kerfi en android svo opið , hvað eru þið að tala um ?
Geti þið nefnt skýrt dæmi þar sem um er að ræða, out of the box, ios vs android ?

Hvað nákvæmlega er að takmarka ykkur ?
Er þetta þegar þið eruð að skrifa hugbúnað sjálfir þá ?

Ég fýla bæði kerfin og S4 klárlega svakalegur keppinautur sem apple munu þurfa að leggja sig alla fram við að svara.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Lau 15. Jún 2013 16:15
af dori
BjarniTS skrifaði:Þegar þið talið um að ios sé svo lokað kerfi en android svo opið , hvað eru þið að tala um ?
Geti þið nefnt skýrt dæmi þar sem um er að ræða, out of the box, ios vs android ?

Hvað nákvæmlega er að takmarka ykkur ?
Er þetta þegar þið eruð að skrifa hugbúnað sjálfir þá ?
Apple stjórna algjörlega hvað það er sem þú getur keyrt á tækinu þínu. Android platforminn er ekki þannig (þó svo að það væri örugglega hægt að útfæra hann þannig, s.s. læsa því þannig að það sé bara hægt að nota Play store). Þessi völd nota Apple m.a. til að banna forrit sem taka upp símtöl eða skoða númer þeirra sem hringja í þig. Hvort það sé gott eða slæmt má síðan velta fyrir sér.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Lau 15. Jún 2013 18:37
af BjarniTS
dori skrifaði:

Er ekki hægt að gera þetta allt á jailbrake-uðum iphone rétt eins og rootuðum android síma ?
Eða geturu sett upp apk skrá í android síma sem er ekki rootaður?

Nota völd , þeir reyna nú held ég að verða við óskum viðskiptavina , eins og ég er. Þó að síminn minn framkvæmi ekki einhverjar ólöglegar og vafasamar aðgerðir þá kvarta ég ekki.
Þetta eru snjalltæki og öll forrit sem eru gefin út í heiminum og virka eða eru notuð af einhverju ráði , þau eru gefin út fyrir bæði ios og android.

Þau forrit sem ég vil eignast borga ég glaður fyrir og stuðla svoleiðis að áframhaldandi hugbunaðarframleiðslu hjá viðkomandi.

Re: Galaxy 4 vs iphone 5? ofl.

Sent: Lau 15. Jún 2013 18:39
af hfwf
BjarniTS skrifaði:

Getur sett upp hvaða APK á síma sem þarfnast ekki root aðgangs.