Síða 1 af 1

Samsung Galaxy S III 4G LTE

Sent: Lau 08. Jún 2013 20:01
af gt-4
Daginn.
Sá Samsung Galaxy S III 4G LTE ,s.s. GT-I9305, auglýsingu og var hann á rugl góðu verði.
Síminn kemur nýr útúr búð læstur á verizon. einnig kemur fram í auglýsingunni ..2-year Verizon Wireless activation required..
Núna er bara spurningin hvort hann sé nothæfur heima á íslandi ?
Er hægt að aflæsa honum og nota hann hjá t.d. nova og komast á netið í gegnum 3g??

Takk :megasmile

Re: Samsung Galaxy S III 4G LTE

Sent: Lau 08. Jún 2013 20:13
af playman
Ég keypti I9305 í Californíu, að vísu í gegnum amazone en fyrirtækið er staðsett í Californíu sem ég fékk síman hjá.
Ég get notað hann fínt hérna heima og ekkert vesen, en hann var International version.
Þessi hérna http://www.amazon.com/gp/product/B009PJ ... UTF8&psc=1
Verður bara að skoða fyrir hvaða tíðnir síminn styður.
Ég veit svosem ekkert hverninn er að aflæsa honum frá Verizon, en þú gætir alltaf rootað hann og notað hann með Nova korti.

Re: Samsung Galaxy S III 4G LTE

Sent: Lau 08. Jún 2013 20:19
af Pandemic
Þessi sími er ónothæfur á Íslandi og þetta verð sem þú ert að skoða er ekki "rugl gott" verð. Þetta er verðið sem hann kostar með samningi frá Verizon í 2 ár, svipað eins og lán nema með símaáskrift.

Re: Samsung Galaxy S III 4G LTE

Sent: Lau 08. Jún 2013 20:42
af gt-4
Pandemic skrifaði:Þessi sími er ónothæfur á Íslandi og þetta verð sem þú ert að skoða er ekki "rugl gott" verð. Þetta er verðið sem hann kostar með samningi frá Verizon í 2 ár, svipað eins og lán nema með símaáskrift.


Þessi amazon linkur er ekki á símann sem ég sá.
En það er engin leið til að gera hann nothæfan hér á íslandi?

Re: Samsung Galaxy S III 4G LTE

Sent: Lau 08. Jún 2013 21:10
af dori
gt-4 skrifaði:
Pandemic skrifaði:Þessi sími er ónothæfur á Íslandi og þetta verð sem þú ert að skoða er ekki "rugl gott" verð. Þetta er verðið sem hann kostar með samningi frá Verizon í 2 ár, svipað eins og lán nema með símaáskrift.


Þessi amazon linkur er ekki á símann sem ég sá.
En það er engin leið til að gera hann nothæfan hér á íslandi?

Þó hann myndi virka á Íslandi þá er þetta rugl verð sem þú sást ekki eitthvað sem þú getur keypt hann á því að þú þarft samning. Svipað og að segja að SGIII kosti 0 kr. hjá Nova og að þú þurfir bara að borga 6000 kr. á mánuði fyrir notkun í ár.

Þetta er bara annað viðskiptamódel þarna úti...

Re: Samsung Galaxy S III 4G LTE

Sent: Lau 08. Jún 2013 21:34
af gt-4
Þannig að þetta er algjörlega útí hött ?
http://www.groupon.com/deals/gg-simplex ... sung-gsiii

Re: Samsung Galaxy S III 4G LTE

Sent: Lau 08. Jún 2013 22:52
af siggik
gt-4 skrifaði:Þannig að þetta er algjörlega útí hött ?
http://www.groupon.com/deals/gg-simplex ... sung-gsiii



ertu tröll ? heldurðu að það sé verið að selja símann á 10 dollara og einungis 100 búnir að versla hann ?

Re: Samsung Galaxy S III 4G LTE

Sent: Sun 09. Jún 2013 00:11
af Pandemic
Það er ekki verið að selja símann á 10 dollara meira svona 150 þúsund þegar allt kemur til alls á svona samningi.

Re: Samsung Galaxy S III 4G LTE

Sent: Sun 09. Jún 2013 01:02
af Nariur
groupon skrifaði:Disclaimer

This offer is fulfilled by Simplexity, LLC, an authorized dealer for Verizon Wireless. This offer is only available with select service plans, features and a two-year subscriber agreement, and is subject to eligibility check by Verizon Wireless, including credit approval or deposit for new customers. Not all US markets are served by Verizon Wireless. Activation and early termination fees apply. Additional restrictions apply. See full offer for details. Offer ends 6/12/2013 or while supplies last.