Síða 1 af 1

Rispa á nýjum iPhone 5

Sent: Lau 25. Maí 2013 20:43
af Arkidas
Ég keypti iPhone 5 í Nova í dag og það er örsmá dæld efst í hægra horninu.
Svarti liturinn farinn af og sést í álið. Ekkert stór en kæri mig samt ekki um
þetta á nýjum síma.

Ég Googlaði þetta aðeins og fann margar umræður, t.d.: http://oo.ej.is/0s1i3Z1g0B2Z

Finnst ykkur ekki sjálfsagt að ég fái símanum skipt
ef ég fer niður eftir á morgun?

Re: Rispa á nýjum iPhone 5

Sent: Lau 25. Maí 2013 20:51
af Icelandgold
Auðvitað áttu að fá nýan,þetta er skemmd vara

Re: Rispa á nýjum iPhone 5

Sent: Lau 25. Maí 2013 20:51
af Baraoli
Arkidas skrifaði:Nova



Ég segi bara gangi þér sem allra best, veit til þess að þeir hafi verið mjög erfiðir með ábyrgðarmál.
Finnst mjög lýklegt þú gangi svekktur út frá þeim en það má alltaf reyna.

Re: Rispa á nýjum iPhone 5

Sent: Lau 25. Maí 2013 21:08
af Tiger
Ef hann er beyglaður og sést í álið þegar hann kemur glænýr út kassanum og enn með filmuni á og alles þá 100% að skipta honum.
En nýja umgjörðin er mjög viðkvæm því miður og miklu viðkvæmari fyrir hnjaski en fyrri umgjarðir og því nokkuð auðvelt að láta álið flagna. Þannig að ef þú tókst ekki eftir þessu strax og hann var með filmuna á sér gæti þetta verið langsótt. 100% viss að þetta hafi ekki gerst hjá þér?

Re: Rispa á nýjum iPhone 5

Sent: Lau 25. Maí 2013 21:33
af Arkidas
Tók plastið strax af. Hefði líklega verið erfitt að sjá þetta annars, þetta er frekar mjó dæld.
Það er bara eins og einhver hafi tekið hníf og skrapað örlítið af símanum. Það er ekki möguleiki
á að ég hafi ollið þessu.

Sjá mynd: http://oo.ej.is/PEX6