Síða 1 af 1
Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Þri 21. Maí 2013 10:58
af playman
Konan verslaði sér Iphone 4 í Californiu, og hann átti að vera ólæstur, en eitthvað klikkkaði það því að
hann virðist vera harðlæstur.
Kom þetta bara í ljós eftir að við komum heim og ætluðum að fara að nota hann, þá kom bara no service á hann.
Það var AT&T kort í honum, og giska ég á að hann sé læstur fyrir AT&T kort.
Er einhver leið að sjá á hvern hann sé læstur?
Mér var sagt að það væri ekkert mál að IMEI aflæsa hann ef að hann sé AT&T læstur.
En hvar er bæst og ódýrast að aflæsa hann, er þetta eitthvað sem hægt er að gera heima án vandamála?
Það var búið að benda mér á iSíman hérna heima, en er eitthvað annað í boði, einhverjir sem hafa reynslu af þessu?
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Þri 21. Maí 2013 13:45
af Legolas
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Þri 21. Maí 2013 13:57
af playman
ok þetta er allaveganna byrjun, takk fyrir það.
En hvað er það sem að gerir sumu fólki kleyft að aflæsa símana, er þetta ekki eitthvað sem ég get gert, eða
þarf maður að hafa einhver sambönd?
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Þri 21. Maí 2013 16:27
af BugsyB
unlock.is
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Þri 21. Maí 2013 18:38
af playman
BugsyB skrifaði:unlock.is
Reynsla?
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Þri 21. Maí 2013 20:58
af Olafst
Hef notað
http://cellunlocker.net/ til að aflæsa Samsung síma. Svínvirkaði.
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Þri 21. Maí 2013 23:36
af BugsyB
playman skrifaði:BugsyB skrifaði:unlock.is
Reynsla?
Mín reynsla er mjög góð af honum sebastian - var með gamlan nokia síma sem var læstur og hann aflæsti honum á 2tímum fyrir mig, þurfti að tengja sig beint inn á móðurborðið og reseta hann.
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Þri 21. Maí 2013 23:41
af Swooper
playman skrifaði:BugsyB skrifaði:unlock.is
Reynsla?
Hef farið með S2 í viðgerð til þeirra, það fór amk vel því hann hefur ekki hikstað síðan.
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Mið 22. Maí 2013 10:07
af playman
Takk kærlega fyrir svörin.
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Mið 22. Maí 2013 10:54
af dedd10
Ef hann er læstur á AT&T ætti þetta að virka:
http://isiminn.is/product.php?id_product=1033
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Mið 22. Maí 2013 11:40
af playman
iSíminn virðist vera dýrastur af þeim sem ég er búin að fá upp.
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Mið 22. Maí 2013 16:54
af sibbsibb
Ég hef nú bara jailbreikað alla mína iphone-a sjálfur. Var reyndar með 3g og 3gs en það var mjög einfalt að opna þá... en kannski er það ekki fyrir alla. Ef þú hefur áhuga get ég sent þér góð tips og tutorials.
Re: Hvar er best að aflæsa Iphone4?
Sent: Fim 23. Maí 2013 08:49
af playman
sibbsibb skrifaði:Ég hef nú bara jailbreikað alla mína iphone-a sjálfur. Var reyndar með 3g og 3gs en það var mjög einfalt að opna þá... en kannski er það ekki fyrir alla. Ef þú hefur áhuga get ég sent þér góð tips og tutorials.
Takk fyrir það, en nei takk, Konan vill fá hann bara aflæstan og ekkert jailbreak.