Ég er að lenda í þvílíku bulli með batteríið í CM9: ICS 4.0.3.

Ef þið skoðið fyrstu myndina sjáið þið að ég var með kveikt á skjánum í ~30 mín af ~13 klst (3,7%) samt var síminn vakandi í ~5 tíma af þessum 13 tímum (40%).
Ef ég skoða Wake locks í BetterBatteryStats appinu er AlarmManager hæstur með 4%
Hef heyrt að þetta sé þekktur böggur í 4.0.3 og sé fixed í 4.0.4.
Langar eiginlega ekki að fara úr CM9, þar sem ég er skíthræddur um að missa root.
