Síða 1 af 1

Hleðslutæki Toshiba

Sent: Lau 24. Des 2011 12:35
af ColdIce
Sælir/Sælar

Ég er með Toshiba Satellite C650 15P fartölvu og gleymdi hleðslutækinu hinum megin á landinu. Pabbi á Toshiba pro L300 25L, er einhver sem getur sagt mér hvort ég geti notað hans hleðslutæki? Einhver sem hreinlega veit svona hluti?

Re: Hleðslutæki Toshiba

Sent: Lau 24. Des 2011 13:53
af Halli25
samkvæmt einfaldri google leit er C650 hleðslutæki 19 Volts, 75 Watts, 3.95 Amps, getur kannað hvort það standi á L300 hleðslutækinu og ef það er þá er sjens að þetta virki saman.

Re: Hleðslutæki Toshiba

Sent: Lau 24. Des 2011 14:06
af ColdIce
Stendur 19V og 3.95A

Stendur ekkert um watts. Prófaði að plögga þetta, ég er svo villtur!

Allavega hleðsluljós á tölvunni og segist vera að hlaða :p

Re: Hleðslutæki Toshiba

Sent: Lau 24. Des 2011 14:06
af Klemmi
ColdIce skrifaði:Sælir/Sælar

Ég er með Toshiba Satellite C650 15P fartölvu og gleymdi hleðslutækinu hinum megin á landinu. Pabbi á Toshiba pro L300 25L, er einhver sem getur sagt mér hvort ég geti notað hans hleðslutæki? Einhver sem hreinlega veit svona hluti?


Ætti að virka nema undir fullu blasti, L300 vélin er líklega með 65W spennubreyti en C650 75W, en það er ekki nema þú ætlir að vera að nauðga henni með allt í botni og batterýið tómt sem að það yrði flöskuháls.

Bætt við:
Wött = Spenna (19V í þessu tilfelli) * Straumur (3.95A) = 75,05W

Re: Hleðslutæki Toshiba

Sent: Lau 24. Des 2011 14:11
af ColdIce
Klemmi skrifaði:
ColdIce skrifaði:Sælir/Sælar

Ég er með Toshiba Satellite C650 15P fartölvu og gleymdi hleðslutækinu hinum megin á landinu. Pabbi á Toshiba pro L300 25L, er einhver sem getur sagt mér hvort ég geti notað hans hleðslutæki? Einhver sem hreinlega veit svona hluti?


Ætti að virka nema undir fullu blasti, L300 vélin er líklega með 65W spennubreyti en C650 75W, en það er ekki nema þú ætlir að vera að nauðga henni með allt í botni og batterýið tómt sem að það yrði flöskuháls.

Bætt við:
Wött = Spenna (19V í þessu tilfelli) * Straumur (3.95A) = 75,05W

Alright, ég er nú bara að nota hana í Facebook ráp til að láta tímann líða :p Engin nauðgun í gangi :)
Takk fyrir svörin og gleðilega hátíð piltar!