Síða 1 af 2
Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 01:21
af wicket
Google voru að opna fyrir enn fleiri lönd á Android Market í dag.
Ísland er með í þeim pakka og núna getum við keypt forrit án þess að roota símann eða setja erlent símakort í símana okkar.
Frábærar fréttir!
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 01:31
af steinarorri
Frábærar fréttir - sé þetta samt ekki. Er þetta komið hjá e-um?
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 01:36
af wicket
Ég sé þetta bæði í símanum mínum og á
http://market.android.comUppfærður listi frá Google yfir lönd sem geta keypt apps er hér :
http://www.google.com/support/androidma ... ic=1100168Ætlaði ekki að trúa því þegar ég sá Ísland á listanum.
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 01:37
af sxf
Snilld, en þetta er ekki enþá komið hjá mér.

Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 02:50
af FuriousJoe
Sé þetta ekki heldur hjá mér :/
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 07:12
af audiophile
Afsakið fáfræðina, en var semsagt ekki hægt að kaupa nein forrit fyrir Android síma fram að þessu? Bara sækja fríkeypis forrit?
Það er þá kannski ágætt að maður var ekkert að drífa sig að fá sér Android síma.
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 07:29
af blitz
audiophile skrifaði:Afsakið fáfræðina, en var semsagt ekki hægt að kaupa nein forrit fyrir Android síma fram að þessu? Bara sækja fríkeypis forrit?
Það er þá kannski ágætt að maður var ekkert að drífa sig að fá sér Android síma.
Ekkert mál að komast framhjá því, engin fyrirstaða fyrir því að fá sér Android
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 07:51
af benson
Ég keypti
Death Worm í gær
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 08:22
af Daz
audiophile skrifaði:Afsakið fáfræðina, en var semsagt ekki hægt að kaupa nein forrit fyrir Android síma fram að þessu? Bara sækja fríkeypis forrit?
Það er þá kannski ágætt að maður var ekkert að drífa sig að fá sér Android síma.
Það á við um öll síma appstorein eins og er. Android, iphone, WinMobile (?)
Annars sé ég að ég get keypt einhver apps, en google apps er samt enþá "out of bounds"

Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 09:32
af kubbur
Hjá ykkur sem þetta virkar, hvaða símafyrirtæki eruð þið hjá?
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 09:52
af Daz
Síminn.
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 10:05
af Hvati
Það er hægt að nota
marketenabler til að komast framhjá svona

Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 10:09
af dori
Daz skrifaði:Annars sé ég að ég get keypt einhver apps,
en google apps er samt enþá "out of bounds" 
Hvað ertu þá að tala um? Google Reader et al?
Mér finnst það satt að segja mjög kjánalegt að Google, hafi ákveðið að hafa region skiptan markað og ennþá furðulegra að þeir skuli sjálfir taka þátt í því að dreifa sínum eigin forritum bara á sum region.
Ég missti ótrúlega mikið álit á þeim við þá uppgötvun mína...
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 10:21
af Daz
Reyndar held ég að Google Reader virki, en Google Listen, Maps og GMail virðast ekki vera í boði.
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 11:02
af ponzer
Sá þetta einmitt í gær tók allt í einu eftir "Paid apps" í Market á símanum mínum

Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 11:13
af addifreysi
audiophile skrifaði:Afsakið fáfræðina, en var semsagt ekki hægt að kaupa nein forrit fyrir Android síma fram að þessu? Bara sækja fríkeypis forrit?
Það er þá kannski ágætt að maður var ekkert að drífa sig að fá sér Android síma.
Það ver nú heldur ekkert stór mál, það eru til fullt af góðum fríum apps.
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 13:48
af roadwarrior
Sweeet.
Fyrir þá sem sjá þetta ekki þá gæti verið að þið verðið að fara inní Market og þaðan inní einhvern flokkinn td Apps eða Games og svo í undirflokk td "ALL APPLICATIONS". Þá ætti að birtast TOP PAID.....
Svo er kortanúmerið skráð í fyrstu kaupum

Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 15:35
af FuriousJoe
Sé þetta ekki ennþá, prófaði meiraðsegja factory reset án árangurs.
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 18:43
af wicket
virkar hér á báðum Android tækjum heimilisins (LG Optimus 2x og Samsung Galaxy S). Báðir hjá Símanum.
Þeir sem sjá þetta ekki gætu þurft að fara í settings - Applications - Market - Clear Data til að hreinsa cache.
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 18:48
af FuriousJoe
wicket skrifaði:virkar hér á báðum Android tækjum heimilisins (LG Optimus 2x og Samsung Galaxy S). Báðir hjá Símanum.
Þeir sem sjá þetta ekki gætu þurft að fara í settings - Applications - Market - Clear Data til að hreinsa cache.
Búinn að prófa það, virkar samt ekki. Er hjá Nova, hefur það einhver áhrif ?
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 19:14
af addifreysi
Maini skrifaði:wicket skrifaði:virkar hér á báðum Android tækjum heimilisins (LG Optimus 2x og Samsung Galaxy S). Báðir hjá Símanum.
Þeir sem sjá þetta ekki gætu þurft að fara í settings - Applications - Market - Clear Data til að hreinsa cache.
Búinn að prófa það, virkar samt ekki. Er hjá Nova, hefur það einhver áhrif ?
Ég sé þau ekki heldur, ég er líka hjá NOVA.

Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 19:26
af Kristján
Þetta er mesta snilld i heiminum. er reyndar bara búinn að spila brower leikinn tær snilld.
edit> Effing Worms heitir hann reyndar en er eiginlega alveg eins.
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 19:28
af FuriousJoe
addifreysi skrifaði:Maini skrifaði:wicket skrifaði:virkar hér á báðum Android tækjum heimilisins (LG Optimus 2x og Samsung Galaxy S). Báðir hjá Símanum.
Þeir sem sjá þetta ekki gætu þurft að fara í settings - Applications - Market - Clear Data til að hreinsa cache.
Búinn að prófa það, virkar samt ekki. Er hjá Nova, hefur það einhver áhrif ?
Ég sé þau ekki heldur, ég er líka hjá NOVA.

Spurning um að færa sig yfir í símann og sjá hvort þetta lagist...
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 19:31
af Hvati
Maini skrifaði:Spurning um að færa sig yfir í símann og sjá hvort þetta lagist...
Notaðu bara MarketEnabler í staðinn, fake-ar símfyrirtæki að vali.
Re: Android Market núna opinn fyrir paid apps á Íslandi
Sent: Fim 12. Maí 2011 19:56
af wicket
Hvati skrifaði:Maini skrifaði:Spurning um að færa sig yfir í símann og sjá hvort þetta lagist...
Notaðu bara MarketEnabler í staðinn, fake-ar símfyrirtæki að vali.
Þarna eru að gefa þér að allir séu búnir að roota símana sína. Market Enabler þarf su réttindi.