Síða 1 af 1

Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 10:24
af Bjosep
Sælir Vaktarar

Mig er að hrjá það vandamál að gúmmítapparnir undir fartölvunni að gúmmítapparnir undir fartölvunni minni eru óðum að týna tölunni sem veldur því að tölvan verður misskemmtileg til nota. Ég efast um að ég sé sá eini sem þetta vandamál hrjáir en nú er spurningin er þetta eitthvað sem hægt er að laga eða verð ég bara að læra að lifa með þessu.

Einhver sem hefur lent í þessu og náð að laga þetta?

P.S. Þetta er Acer aspire 5315 fartölva.

kv.
Bjosep

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 10:43
af topas
Eg hef límt fíberpúða eins og ætlaðir eru undir stólfætur til að hlífa parketi í staðinn fyrir gúmmíið. Virkar bara nokkuð vel :)

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 10:44
af ZiRiuS
Ertu búinn að athuga með umboðsaðilana sem selja Acer vélar? Þær búðir stundum selja svona aukahluti.

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 10:44
af Klaufi
Ég átti afgangs 3mm Gúmmi sem er notað til að loka holrúmum í bílum.

Notaði höggpípu í réttri stærð og þeir pössuðu fullkomlega þar sem original tapparnir undir vélinni sem ég var með voru akkúrat 3mm.
Notaði bara Loctite superglue ef ég man rétt..

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 10:47
af Big Red
gerði það sama nema keypti úr gúmmí sem ætlað var undir sófa/stólfætur. Og það helst bara mikið betur undir ;)

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 12:04
af Bjosep
ZiRiuS skrifaði:Ertu búinn að athuga með umboðsaðilana sem selja Acer vélar? Þær búðir stundum selja svona aukahluti.


Ég renndi í gegnum heimasíðurnar hjá Tölvulistanum og Att og sá ekkert um þetta hjá þeim.

Hinar lausnirnar hljóma líka betur(ódýrari) :megasmile

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 14:53
af snaeji
Big Red skrifaði:gerði það sama nema keypti úr gúmmí sem ætlað var undir sófa/stólfætur. Og það helst bara mikið betur undir ;)


x2 , klippir þá bara til og ég var með eh gúmmí/korkish tappa undir stóla og límið á þeim hefur dugað hingað til.

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 14:56
af hauksinick
gætir hugsanlega tekið smá bút af garðslöngu og "turn them inside-out"

Síðan super glue-að það undir

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 14:56
af Pandemic
Bjosep skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:Ertu búinn að athuga með umboðsaðilana sem selja Acer vélar? Þær búðir stundum selja svona aukahluti.


Ég renndi í gegnum heimasíðurnar hjá Tölvulistanum og Att og sá ekkert um þetta hjá þeim.

Hinar lausnirnar hljóma líka betur(ódýrari) :megasmile


Þetta er líka fáranlega dýrt frá framleiðanda. Make em ur self.

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 15:45
af Danni V8
Afsaka þráðarhnuplið en mér sýnist niðurstaða vera komin í upprunalegu spurninguna, svo ég er með aðra.

Á Medion fartölvunni minni voru svona gúmmítappar, en þeir sem voru fyrir miðri fartölvunni bráðnuðu, eða mýktust verulega allavega, og urðu að lími svo það festist öll drulla í þá. Ég tók alla tappana úr á endanum til að tölvan yrði ekki völt.

Ef ég set nýja tappa, gerist það sama eða var þetta bara eitthvað drasl frá Medion? Eins og er rennur hún á öllum yfirborðum.. ekkert grip!

Re: Að endurnýja/laga gúmmítappa undir fartölvu

Sent: Mán 07. Mar 2011 16:43
af snaeji
drasl frá medion