Ég er að leita mér af almennilegum lappa, ég heillast mest af Dell og Toshiba, en er opinn fyrir kannski HP eða Lenovo, budgetinn minn er svona 150-230kall
Hvað notkun varðar þá er þetta í skólann en ég vil hafa almennilega græju ef ég asnast til að fara rendera einhverjar video clippur, eða leika mér í some tölvuleikjum sem ég á til að gera.
ég var með auga á þessari http://ejs.is/Pages/999/itemno/VOSTRO3500%252301 er bara svo langt síðan maður var með einhvern púls á vélum og öllu sem að því kemur að ég kannast ekki einu sinni við þennan örgjörva, ( er verið að reyna fela celeron ógeðið eða ?

Sækist eftir góðu og hröðu minni, er ekki dual channel líka í löppum ?
7200rpm disk, ekki of lítinn 250gb væri splendid.
og svo eitthvað gæða skjákort
Ef einhver getur gefið mér comment á t.d þessa vél sem ég var að linka hérna, eða á eitthvað sambærilegt, betri kjör/þjónusta eða eitthvað þar eftir götunum, væri eðall.
með fyrirfram þökk
Vignir