Ég keypti mér eitt sinn 17" fartölvu með það í huga að geta spilað líka leiki á henni á tæpan 200þús kall. Ég held ég geri það ekki aftur. En ég er auðvitað ekki 14 ára strákur, ég nota mína fartölvu í meira en bara leiki og bíómyndir. Þessi 17" Toshiba leikjafartölva sem ég fékk mér var öflug á sínum tíma, gat spilað helstu leikina í fínum gæðum en var fljót að úreldast. Leikjaþróunin var/er svo hröð að ég var hættur að ráða við nýjustu leikina eftir nokkra mánuði.
Þegar ég keypti mér nýja fartölvu ákvað ég að kaupa áreiðanlega fartölvu sem væri hljóðlát, nett en samt öflug og traust. Sleppti allri leikjaspilun (þó ég ráði nú við CoD4 en varla neitt merkilegra en það). Á í dag 14" Thinkpad sem er rosalega þægilegt að ferðast með að mínu mati, allavega miðað við 17" hlunkinn.
En ef sonur þinn vill leikjafartölvu þá er það auðvitað bara þannig. Fann nokkrar í fljótu bragði í kringum 150k budgetið sem eru með sæmileg skjákort, allavega engin Intel skjástýring í þeim. Tek samt fram að ég er nú enginn sérfræðingur í skjákortafræðum. Allar þessar tölvur eru með Nvidia eða ATI skjákort, misgóð auðvitað. Þessar eru allar í 15.6" tommu flokknum.
Elko - Toshiba.Tölvutek - Packard Bell.Tölvulistinn - Toshiba. Þessi er á tilboði ef þú ert í Stöð2Vild.
Tölvulistinn - Toshiba. Þessi er einnig á tilboði ef þú ert í Stöð2Vild.
Omnis - HP Presario.Buy.is - Asus**EDIT:
Hér er ein nokkuð öflug Toshiba vél á tilboði hjá att.isAnnars eru nú einhverjir hér á vaktinni sem eru með grudge gegn einhverjum af þessum verslunum sem ég linka á, getur eflaust fundið einhverjar reynslusögur hér á spjallinu.
Svo ef þú vinnur í lottó fyrir ferminguna þá gætirðu auðvitað komið drengnum á óvart með
einni svona 