Síða 1 af 1

Truflanir í hljóði á Asus / Win 7

Sent: Mán 22. Mar 2010 02:14
af Templarinn
Á Asus F5V. Er með Realtek High Definition Audio og Win 7.

Virkaði fínt fyrst. Kannast ekki við að hafa verið að installa nýju software'i þegar þetta byrjaði.

Allt í einu tók ég eftir skruðningum í hljóðinu, sama hvort ég er með tengt í græjur eða bara hátalarana á tölvunni. Er búinn að update'a driver.
Er með nýlegann bios í móðurborði.

Er bara að pæla hvort það sé séns að þetta sé vesen í innbyggða hljóðkortinu / móðurborðinu..?
Getur það lýst sér sem auka skruðningar sem koma í takt við hljóðin sem eru í gangi á þeim tíma, hverfa svo þegar ekkert er að spila...

Græði ég eitthvað á því að formatta..? Er nýlega búinn að því...