Síða 1 af 1
MSI fistölvur
Sent: Mið 10. Feb 2010 15:27
af KermitTheFrog
Sælinú. Systir mín keypti sér einhverja MSI slim tölvu (held m600 eða eitthvað slíkt) og er alveg hæst ánægð með hana. Hún tók eftir því að batteríið smelltist ekki alveg rétt í og lyklaborðið var pínu upphleypt. Kærasti hennar fékk hana til að efast eitthvað um gæði tölvunnar.
Er MSI ekki alveg jafn gott og það næsta?
Re: MSI fistölvur
Sent: Mið 10. Feb 2010 15:46
af mind
Það má víst finna að öllu ef maður nennir því.
Held það sé engin ástæða til að efast um gæði merkisins eða vélarinnar, svona litlar vélar þurfa oft aðeins frábrugðna hönnun til að koma hlutum fyrir.
Það er algengara að aðferð sé röng frekar en að fjöldaframleiddir hlutir passi ekki saman hvað batterí varðar.
Lyklaborðið í fartölvum eru yfirleitt með ál eða annan málmbotn svo þau geta haft smá svigrúm eða mögulega sitið örlítið skakkt. Viðkomandi verkstæði gæti eflaust kippt því í lag á skömmum tíma jafnvel þó það teljist ekki óeðlilegt svigrúm.
Re: MSI fistölvur
Sent: Mið 10. Feb 2010 15:57
af KermitTheFrog
Hún fór með hana og þeir löguðu vesenið með batteríið allavega. Þetta lyklaborðsvesen er sennilega ekkert til að hafa miklar áhyggur af held ég.
Re: MSI fistölvur
Sent: Mið 10. Feb 2010 16:34
af einarhr
Varðandi lyklaborðið þá er oft hægt að laga svona lagað með því að nota Double tape, ss límband með 2 límhliðum og líma niður Lyklaborðið.
Re: MSI fistölvur
Sent: Mið 10. Feb 2010 16:40
af rapport
lol
Ef þetta væri mín persónulega tölva þá væri ég búinn að taka lyklaborðið af og einfaldlega beygla það til baka og setja aftur á, í sumum tölvum seru lyklaborðin eingöngu smellt en í öðrum er skrúfað í gegnum tölvuna í lyklaborðsbotninn, hljómar svolítið eins og það vanti að herða eina svoleiðis..
... samt smá meira delicate en það hljómar, þetta með að beygla til baka ...