Síða 1 af 1

Fartölva á um 150.000

Sent: Þri 02. Feb 2010 15:24
af ingolfurb
Góðan daginn vaktarar. Ég ætlaði að athuga hvort þið gætuð komið mér til hjálpar í sambandi við val á fartölvu.
Hún á mestmegins að vera notuð í verkefnavinnu svosem word, powerpoint og spss og svo fleira. Ég er búinn að sjá eins og 3 tölvur sem mér líst ágætlega á,
ein þeirra er Packard Bell TJ65 sem er á 150. þúsund hjá tölvutek (væri ágætt að heyra ykkar reynslu af tölvutek) http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=21190
önnur er HP Compaq Presario hjá tölvutek á ~150 þúsund : http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=21227
og hin er Dell inspiron 15 hjá ejs á 150.þús : http://ejs.is/Pages/970/itemno/TV-INSP15%252312-RED.

Ég er ekki vel að mér þegar á að velja fartölvu þannig að allar upplýsingar og öll sú hjálp sem þið gætuð veitt væri frábær :)

Takk kærlega fyrir
Ingólfur

Re: Fartölva á um 150.000

Sent: Mið 03. Feb 2010 07:53
af ingolfurb
upp :)

Re: Fartölva á um 150.000

Sent: Mið 03. Feb 2010 10:30
af Halli25
Ég myndi ekki taka HP, þær hafa verið að bila mikið undanfarið. Hef enga reynslu af Dell né Packard Bell en það litla sem ég hef séð af Packard Bell þá myndi ég ekki selja móður minni þær :)

ég myndi skoða líka Toshiba fartölvur, þær eru verulega traustar og þjónustan er verulega góð. Passaðu samt að kaupa ekki vélar keyptar frá Bandaríkjunum, þú getur lent í veseni með að fá góða þjónustu við þær hérlendis.

Re: Fartölva á um 150.000

Sent: Mið 03. Feb 2010 10:39
af ElbaRado
@Faraldur mælir þú bara með tölvum sem tölvulistinn selur?

Re: Fartölva á um 150.000

Sent: Mið 03. Feb 2010 10:46
af Glazier
ElbaRado skrifaði:@Faraldur mælir þú bara með tölvum sem tölvulistinn selur?

Það er nú hægt að fá Toshiba tölvur á mörgum öðrum stöðum en í TL

Re: Fartölva á um 150.000

Sent: Mið 03. Feb 2010 12:49
af benson
Er það ekki rétt hjá mér að Acer á Packard Bell eða öfugt? Er ég að rugla?

Re: Fartölva á um 150.000

Sent: Mið 03. Feb 2010 13:19
af Halli25
benson skrifaði:Er það ekki rétt hjá mér að Acer á Packard Bell eða öfugt? Er ég að rugla?

Rétt hjá þér, Acer keypti nýlega PB og einnig eMachines, hvort tveggja budget merki í fartölvum.

Re: Fartölva á um 150.000

Sent: Mið 03. Feb 2010 15:36
af ingolfurb
Takk kærlega fyrir allar athugasemdirnar.

Ég er nokkuð spenntur fyrir packard bell tölvunni, hefurðu frétt af mjög mörgum tilfellum af bilunum hjá pb faraldur? Hef voðalega lítið vit á þessu en hef heyrt hjá einum sem hefur átt pb tölvu í svona 1 og hálft ár að hún hafi aldrei bilað og ekkert vesen á henni en það er líka mjög mismunandi hverju maður getur lent í með þessar tölvur.

Takk aftur fyrir hjálpina strákar :)

Re: Fartölva á um 150.000

Sent: Fim 04. Feb 2010 10:21
af ingolfurb
Kaupi líklegast Tj65 tölvuna í dag, eru nokkur lokaráð sem einhver getur veitt mér? Hefur einhver hérna persónulega reynslu af þessum tölvum?
Takk takk
Ingó

Re: Fartölva á um 150.000

Sent: Fim 04. Feb 2010 11:02
af Halli25
Hef enga reynslu af packard bell aðra en að hafa þuklað á þeim í búð og þær voru verulega heitar viðkomu sem er ekki gott merki.
Það eru mánudagseintök í öllum fartölvumerkjum bara mismikið ;)