Fartölvukaup fyrir skóla (budget ca 200k)
Sent: Mán 11. Jan 2010 21:06
Mig vantar fartölvu fyrir næsta haust fyrir ca 200.000 og verður líklega ekki keypt á Íslandi. Hún verður aðallega notuð í skóladót (word/excel/forritun/etc) en líka í aðeins þyngri og leiðinlegri forrit sem tengjast tónlist eins og Serato Scratch Live. Líklega ekkert í leiki. Hún þarf að hafa góðan örgjörva og skjákort (veit samt ekkert hvernig), 802.11n wifi og helst ekki vera stærri en 13,3". Harði diskurinn þarf ekki að vera neitt sérstaklega stór, bara 7200rpm því ég mun líklega uppfæra hann og RAMið fljótlega og hvort sem er nota ég oft USB hýsingar utan um stærri HDD.
Það sem ég vil alls ekki er Acer og helst ekki Lenovo/IBM eða Apple (eiginlega bara af því að Apple eru of dýrar).
Það sem mér líst best á hingað til er Dell studio XPS 13. Ókosturinn er 1280x800 upplausn en er það ekki bara vegna þess að skjárinn er svo lítill?
Ég hef líka aðeins verið að skoða Sony Z á netinu en ég held þær kosti handlegg
(sem er kannski þess virði fyrir 13,1" og 1600x900 upplausn)
Er séns að fá betri upplausn en 1280x800 á 13,3" skjá fyrir þennan pening? Er einhver hérna með reynslu af Sony laptops? Einhverjar tölvur sem þið mælið með? Hvað þarf ég að spá í varðandi örgjörva og skjákort?