Síða 1 af 1
Vantar hjálp með hleðslutæki
Sent: Mið 30. Des 2009 00:22
af sos93
Ég er með toshiba tölvu og hleðslutækið fyrir hana eyðilagðist. Output á því er 19V DC og skilar 3.9 Amperum. Ég fékk annað hjá vini mínum sem er fyrir toshiba fartölvu og Outputið á því er einnig 19V en skilar 4.7 amperum. Vitiði hvort það er í lagi að nota það. er það ekki aðallega voltin sem að skipta máli. Þá er ég semsagt að spá hvort að ég geti nokkuð eyðilagt batterýið og móðurborðið með því að nota þetta ?
Takktakk
Re: Vantar hjálp með hleðslutæki
Sent: Mið 30. Des 2009 00:25
af AntiTrust
Ætti að vera í góðu lagi að nota þetta, hugsanlega er meira álag á rafhlöðuna og gæti skilað sér í styttri líftíma til lengdar á rafhlöðunni en ég er nokk viss um að vélin sjálf sé safe, rafhlaðan ætti að taka af vélinni alla hættu.
Re: Vantar hjálp með hleðslutæki
Sent: Mið 30. Des 2009 00:32
af sos93
Takk fyrir svarið

, datt þetta í hug en þorði samt ekki að taka áhættuna þar sem þetta er ekki nema 3 mán tölva
Re: Vantar hjálp með hleðslutæki
Sent: Mið 30. Des 2009 00:37
af AntiTrust
sos93 skrifaði:Takk fyrir svarið

, datt þetta í hug en þorði samt ekki að taka áhættuna þar sem þetta er ekki nema 3 mán tölva
Svo er það annað mál að ábyrgðaraðili er líklega í fullum rétti til þess að afneita þér ábyrgðarviðgerð viti þeir að þú sért ekki að nota designated straumbreyti, svo annaðhvort reddaru þér nýjum eins eða hefur bara hljótt um að þú sért að nota þennan.