Síða 1 af 1

Vesen með fartölvu

Sent: Mán 21. Des 2009 17:46
af Lallistori
Sælir vélin hjá mér slökkti bara á sér í gær , og neitar hreinlega að kveikja á sér aftur..
Vélin var alls ekki heit né verið með eitthvað vesen áður..

Vélin er Acer Aspire 3613LMi ca 3 ára.

Hvað gæti verið að klikka ? móðurborðið eða batterýið ?


Öll álit vel þegin.

Re: Vesen með fartölvu

Sent: Þri 22. Des 2009 09:39
af IL2
Fer hún heldur ekki í gang með hleðslutækinu? Ef hún gerir það ekki, þá er það allavega ekki batteríið.

Re: Vesen með fartölvu

Sent: Þri 22. Des 2009 11:51
af einarhr
Ef þú setur spennubreytinn í samband, kemur þá hleðsluljósið á vélina? Ef ekki þá er bara að skjótast út í næstu tölvubúð og biðja þá að mæla spennubreytinn fyrir þig.

Þú getur líka prófað eitt, Taktu batteríið úr henni, (ekki hafa spennubreytinn í sambandi) og haltu inni on/off takkanum í ca 10 sek. Settu svo spennubreytinn í samband og prófaðu að ræsa.

Re: Vesen með fartölvu

Sent: Þri 22. Des 2009 13:40
af tolli60
einarhr skrifaði:Ef þú setur spennubreytinn í samband, kemur þá hleðsluljósið á vélina? Ef ekki þá er bara að skjótast út í næstu tölvubúð og biðja þá að mæla spennubreytinn fyrir þig.

Þú getur líka prófað eitt, Taktu batteríið úr henni, (ekki hafa spennubreytinn í sambandi) og haltu inni on/off takkanum í ca 10 sek. Settu svo spennubreytinn í samband og prófaðu að ræsa.

Rett að prufa þetta og taktu eftir hvort spennubreytirinn hitnar þó ekki se nema aðeins

Re: Vesen með fartölvu

Sent: Þri 22. Des 2009 13:59
af einarhr
tolli60 skrifaði:
einarhr skrifaði:Ef þú setur spennubreytinn í samband, kemur þá hleðsluljósið á vélina? Ef ekki þá er bara að skjótast út í næstu tölvubúð og biðja þá að mæla spennubreytinn fyrir þig.

Þú getur líka prófað eitt, Taktu batteríið úr henni, (ekki hafa spennubreytinn í sambandi) og haltu inni on/off takkanum í ca 10 sek. Settu svo spennubreytinn í samband og prófaðu að ræsa.

Rett að prufa þetta og taktu eftir hvort spennubreytirinn hitnar þó ekki se nema aðeins


Þegar ég vann við tölvuviðgerðir þá var þetta oft að gerast með ýmsar fartölvutengundir og gerist þá oftast þegar tölvan verður batteríslaus og reynir Hibernation. Tölvan nær ekki að klára og á einhvern hátt þá hleðst spenna inn á móðurborðið og allt frís, ss ekki hægt að ræsa aftur nema að gera það sem ég lýsti fyrir ofan.

Re: Vesen með fartölvu

Sent: Þri 22. Des 2009 19:19
af Lallistori
einarhr skrifaði:Ef þú setur spennubreytinn í samband, kemur þá hleðsluljósið á vélina? Ef ekki þá er bara að skjótast út í næstu tölvubúð og biðja þá að mæla spennubreytinn fyrir þig.

Þú getur líka prófað eitt, Taktu batteríið úr henni, (ekki hafa spennubreytinn í sambandi) og haltu inni on/off takkanum í ca 10 sek. Settu svo spennubreytinn í samband og prófaðu að ræsa.


þetta virkaði , takk :P