Síða 1 af 1

Ofhitnun lappa / ábyrgð

Sent: Sun 29. Nóv 2009 23:02
af intenz
Sælir, vinkona mín á í smá basli með lappann sinn. Hann verður alltaf rosalega heitur og frýs alltaf hjá henni. Það liggur í augum uppi að þetta er út af ofhitnun, og hugsanlega út af því að loftgötin eru stífluð af ryki.

En þá kemur að spurningunni. Hver er ábyrgðartíminn á fartölvum? Þetta var keypt hjá Odda/A4 í ágúst 2007.

Coverar ábyrgðin þetta ekki alveg örugglega?

Re: Ofhitnun lappa / ábyrgð

Sent: Sun 29. Nóv 2009 23:05
af SteiniP
Það er 2 ára ábyrgð skv lögum, gæti verið lengri.

Færð örugglega skýrari frá ábyrgðaraðila heldur en okkur :roll:

Re: Ofhitnun lappa / ábyrgð

Sent: Sun 29. Nóv 2009 23:05
af Gunnar
2 ár nema hun hafði keypt 1 auka ár.

Re: Ofhitnun lappa / ábyrgð

Sent: Sun 29. Nóv 2009 23:08
af BjarniTS
Ansi hræddur um að vélin sé dottin úr ábyrgð.
En það er ekkert voða dýrt að láta rykhreinsa svona vélar á verkstæðum.

Re: Ofhitnun lappa / ábyrgð

Sent: Sun 29. Nóv 2009 23:12
af lukkuláki
Það gefur alveg augaleið að þetta er EKKI ábyrgðarmál.
Heldur þú á RYK í kælibúnaði tölvunnar hafi eitthvað með framleiðslugalla að gera ?

Ábyrgð nær til galla í vélbúnaði en ekki ryksöfnunar eða hugbúnaðarvandamála.

Re: Ofhitnun lappa / ábyrgð

Sent: Sun 29. Nóv 2009 23:43
af intenz
Er það ekki galli ef hún fyllist upp af ryki á engum tíma? :D

Re: Ofhitnun lappa / ábyrgð

Sent: Sun 29. Nóv 2009 23:53
af SteiniP
intenz skrifaði:Er það ekki galli ef hún fyllist upp af ryki á engum tíma? :D

Nei, það þýðir bara að þú þurfir að ryksuga herbergið þitt og hætta að geyma tölvuna oná sæng :D

Re: Ofhitnun lappa / ábyrgð

Sent: Sun 29. Nóv 2009 23:58
af intenz
SteiniP skrifaði:
intenz skrifaði:Er það ekki galli ef hún fyllist upp af ryki á engum tíma? :D

Nei, það þýðir bara að þú þurfir að ryksuga herbergið þitt og hætta að geyma tölvuna oná sæng :D

Hehehe, góður punktur. :lol:

Re: Ofhitnun lappa / ábyrgð

Sent: Mán 30. Nóv 2009 00:05
af chaplin
lukkuláki skrifaði:Það gefur alveg augaleið að þetta er EKKI ábyrgðarmál.
Heldur þú á RYK í kælibúnaði tölvunnar hafi eitthvað með framleiðslugalla að gera ?

Ábyrgð nær til galla í vélbúnaði en ekki ryksöfnunar eða hugbúnaðarvandamála.


SteiniP skrifaði:
intenz skrifaði:Er það ekki galli ef hún fyllist upp af ryki á engum tíma? :D

Nei, það þýðir bara að þú þurfir að ryksuga herbergið þitt og hætta að geyma tölvuna oná sæng :D

Nuff said. :wink: