Síða 1 af 1
NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Þri 24. Nóv 2009 23:12
af Viktor
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/1 ... ur_iphone/http://blogg.nova.is/?p=211Nova býður nú nýja iPhone 3GS farsímann á desembertilboði 139.900 kr. en fullt verð er 156.900 kr. iPhone farsímanum fylgir jafnfram 1 GB frí netnotkun á mánuði allt árið 2010 fyrir viðskiptavini í áskrift. Farsíminn fæst eingöngu í verslun Nova í Lágmúla 9.
IPhone 3GS er í raun lítil nettengd tölva með frábært notendaviðmót og möguleikarnir á netvöfrun, tölvupósti, afþreyingu osfrv. eru endalausir. IPhone er fyrirmyndin að því sem koma skal því nú keppast aðrir farsímaframleiðendur um allan heim við að komast með tærnar þar sem Apple hafa hælana.
IPhone 3G S farsíminn kostar vissulega sitt en fyrir þá sem hafa áhuga á þessum síma þá býðst hann á 139.900 kr. hjá Nova sem er mun betra verð en aðrir bjóða hann á.
Nova býður öllum iPhone 3G og 3G S eigendum í áskrift 1 GB netnotkun á 0 kr. / mán. allt árið 2010 – hvort sem þú hefur keypt símann hjá Nova eða t.d. keypt hann erlendis þá getur þú nýtt þér þetta desember-tilboð.
Re: NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Þri 24. Nóv 2009 23:35
af GuðjónR
Dýrt en spennandi, en þú verður að kaupa áskrift hjá þeim og það kostar væntanlega eitthvað á hverjum mánuði.
Og annað, 1GB ... myndi maður ná að DL 1GB í síma á mán? þ.e. via 3G
Ef maður á annað borð ætlar að fylla hann af forritum eða drasli er þá ekki heimanetið málið?
Spyr sá sem hefur aldrei séð iPhone né átt 3G síma.
Re: NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Þri 24. Nóv 2009 23:38
af Viktor
GuðjónR skrifaði:Dýrt en spennandi, en þú verður að kaupa áskrift hjá þeim og það kostar væntanlega eitthvað á hverjum mánuði.
Og annað, 1GB ... myndi maður ná að DL 1GB í síma á mán? þ.e. via 3G
Ef maður á annað borð ætlar að fylla hann af forritum eða drasli er þá ekki heimanetið málið?
Spyr sá sem hefur aldrei séð iPhone né átt 3G síma.
Þarft ekki að borga á mánuði ef þú ert í frelsi.
1GB á mánuði er meira en nóg held ég, nema þú sért að fara streama videos í gegnum símann.
Re: NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Þri 24. Nóv 2009 23:42
af GuðjónR
Sallarólegur skrifaði:http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/11/24/nova_selur_iphone/
http://blogg.nova.is/?p=211iPhone farsímanum fylgir jafnfram 1 GB frí netnotkun á mánuði allt árið 2010 fyrir viðskiptavini í áskrift.
Ég er orðin eldri en svo að gleypa allt hrátt...
Re: NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Þri 24. Nóv 2009 23:46
af depill
Áskrift kostar 490 kr og ef þeir munu virkja teathiring er þetta intresting ( þá geturðu notað iPhoneinn þinn sem 3G pung, ég er með 250 MB í gagnamagn við Símann minn og tengi hann við tölvuna með bluetooth og nota hann sem "pung" þegar mig vantar )
Re: NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Þri 24. Nóv 2009 23:52
af GuðjónR
En svona almennt...
Er þetta sniðugt? (veit þetta er dýrt)...
iPhone er hann ekki meira lófatölva en sími?
Re: NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Mið 25. Nóv 2009 00:48
af machinehead
GuðjónR skrifaði:En svona almennt...
Er þetta sniðugt? (veit þetta er dýrt)...
iPhone er hann ekki meira lófatölva en sími?
Ef maður er á annað borð að fá sé síma á 100k+, þá myndi ég frekar fara í eitthvað traust og öruggt eins og Nokia.
Re: NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Mið 25. Nóv 2009 00:57
af JohnnyX
machinehead skrifaði:GuðjónR skrifaði:En svona almennt...
Er þetta sniðugt? (veit þetta er dýrt)...
iPhone er hann ekki meira lófatölva en sími?
Ef maður er á annað borð að fá sé síma á 100k+, þá myndi ég frekar fara í eitthvað traust og öruggt eins og Nokia.
Það sem að ég hef séð af t.d. Nokia N-seríunni er sú að eftir nokkra mánuði eða svo byrja þeir að lagga tölvuvert þótt að ekki sé mikið inn á þeim. Séð þetta hjá nokkrum. Getur vel verið að það séu einangruð tilvik
Re: NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Mið 25. Nóv 2009 01:24
af machinehead
JohnnyX skrifaði:machinehead skrifaði:GuðjónR skrifaði:En svona almennt...
Er þetta sniðugt? (veit þetta er dýrt)...
iPhone er hann ekki meira lófatölva en sími?
Ef maður er á annað borð að fá sé síma á 100k+, þá myndi ég frekar fara í eitthvað traust og öruggt eins og Nokia.
Það sem að ég hef séð af t.d. Nokia N-seríunni er sú að eftir nokkra mánuði eða svo byrja þeir að lagga tölvuvert þótt að ekki sé mikið inn á þeim. Séð þetta hjá nokkrum. Getur vel verið að það séu einangruð tilvik
Ég hef átt N95 8GB í meira en 1 1/2 ár, hef ekki tekið eftir neinu laggi þannig séð.
Re: NOVA selur iPhone 3GS - 1GB notkun á mánuði, 139.000 kr
Sent: Mið 25. Nóv 2009 01:39
af urban
GuðjónR skrifaði:En svona almennt...
Er þetta sniðugt? (veit þetta er dýrt)...
iPhone er hann ekki meira lófatölva en sími?
iphone er fínasta lófatölva, flott sms theingí... (ef þú fílar snertiskjáinn á annað borð) og helvíti cool
en slappur sími