Vandamál með Acer
Sent: Mið 04. Nóv 2009 19:16
af Bouldie
Ég er með Acer Aspire 5630 fartölvu og keypti mér Football Manager 2010. Í hvert skipti sem ég ætla að nota leikjavélina í leiknum (match engine) þá kemur upp blár skjár og tölvan restartar sjálfri sér, ég get ekkert séð hvað stendur á bláa skjánum því hún slekkur á sér svo fljótt.
Hefur einhver hugmynd hvað gæti verið að? Tölvan á að vera nógu góð til að spila leikinn
Re: Vandamál með Acer
Sent: Mið 04. Nóv 2009 19:23
af Legolas
Hiti ???
Re: Vandamál með Acer
Sent: Mið 04. Nóv 2009 19:32
af intenz
Ég lenti í einmitt sama vandamáli tvisvar. Í fyrra skipti var það að SATA data kapallinn datt alltaf úr sambandi og í hitt skiptið var það að vinnsluminnið var ónýtt.
Þetta gæti verið svo margt; Hiti, hdd, ram, o.s.frv.
Ég mæli hins vegar með því að taka "automatic reboot" af svo þú getir séð hvað stendur á BSOD. Svona geriru það: Hægri smella My Computer, fara í "Properties", fara í "Advanced" flipann, smella á "Settings" takkann við "Startup and Recovery" og taka hakið af "Automatically restart".
Einnig mæli ég með því að skoða Event Viewer. Svona geriru það: Start -> Control Panel -> Administrative Tools -> Event Viewer og skoða System og Application undir "Windows logs" á þeim tíma sem vélin crashaði.
Gangi þér vel.