Síða 1 af 1

MSI Slim X340 - Álit? Reynsla?

Sent: Mán 26. Okt 2009 16:21
af Andri Fannar
Sælir,
hef ekki skrifað hér í háa herrans tíð en nú er komið að fartölvukaupum.

Mín eldgamla Dell Inspiron 640m er búin að skila sínu og gott betur og orðin heldur lúin,
finnst Dell mjög gott merki í fartölvum en þeir bjóða ekki upp á það sem ég er að leita að núna, þaes skjá minni en ~15" nema þá XPS vélarnar sem kosta augun úr. Fann því ódýrari kost sem ég þekki lítið þó.

http://tolvulistinn.is/vara/18997 - MSI Slim X340 fartölva Intel C723

Hún er hentug í það sem ég þarf að gera, ferðast mikið með hana, létt og afar nett og alls ekki dýr.

Hafa menn einhverja reynslu af þessum tölvum eða heyrt eitthvað um þær?
Er þetta bara waste of money eða eitthvað vit?