AntiTrust skrifaði:mind skrifaði:
Þú ert að halda því fram að eitthvað sem endist vel geti ekki verið gæðavara ? Þetta er nú bara hrópandi mótsögn!
Það er nokkuð alvituð staðreynd í tölvugeiranum að XP verður hægt með tímanum. En aftur á móti eru líkurnar á að þú sért ekki í þeim geira eða vitir mjög lítið um hann að skrifum að dæma.
Mín reynsla sem tæknimaður á verkstæði undanfarin ár er langt í frá sú að Acer vélarnar endist vel. Og nei, XP verður ekki eitt og sér hægt með tímanum, segir sig sjálft að það sem hægir á vélinni er e-ð sem kemur frá user-endanum. Að sama skapi getur notandinn hreinsað upp það sem hægir á tölvunni með tímanum með lágmarkskunnáttu og smá google-i.
Það að tölvur endist lengi er ekki það sama og að vera gæðavara, ekki í mínum bókum allavega. Build quality-ið og overall feel-ið í Acer er í flestum týpum sem þeir framleiða hræðilegt, rafhlöður oft ótrúlega lélegar, hitavandamál algeng, straumtengi oft illa lóðuð á móðurborð og margt fleira.
Víst þú ert tæknimaður og starfandi í þokkabót að sögn annars þá máttu endilega deila því hvar þú starfar svo hægt sé að meta skrif þín á þeim grundvelli en ekki að þú sért óháður aðili.
Kannski endast Acer vélar ekkert vel, kannski endast þær fínt. Aðili hér sagði sína reynslusögu af eigin eign.
Þú bauðst uppá fullyrðingu um að vélin hans myndi aldrei teljast í háum gæðaflokki með þær upplýsingar einar hver framleiðandinn er(nema þú hafir breytt þínu pósti 1 min eftir hans). Ef svo þá vissir þú ekki hver týpan var má álykta þú sért hér að dæma framleiðandann.
Nú ef svo þá er reynsla hjá aðilanum að 2 tölvur af 2 virki ennþá.
Hversu margar tölvum af hverjum virka/eða ekki í þínu tilviki ?
Ef ég set upp í dag tölvu með Windows XP, tengi við netið og hef hana í gangi í kannski 2-3 ár. Þá verður hún í sama ástandi og þegar ég setti hana upp ?
Rétt er að langtímaending er ekki sama og gæði en þessir hlutir eru vissulega tengdir saman. Meiri gæði ættu í flestum tilvikum að skila betri endingu.
Hver smíðagæðin og tilfinningin fyrir Acer fartölvum er þá eru þetta yfirleitt ódýrari vélar en flestar.
Ég hef líklega heyrt allar þessar lýsingar um HP vélar og reyndar aðra framleiðendur. Ég myndi samt seint segja að HP vélar nái ekki háum gæðaflokki.
Frekar myndi ég hvetja fólk til að vanda valið og hafa í huga að það að versla ódýrast getur komið í bakið á manni.