Síða 1 af 1

Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Mið 09. Sep 2009 11:52
af Hargo
Varðandi fartölvur, finnst ykkur bluetooth vera orðinn nauðsynlegur partur af nýjum fartölvum í dag eða bara algjör óþarfi?

Gamla fartölvan mín var með bluetooth en ég notaði þetta aldrei. Prófaði einu sinni að tengjast gemsanum mínum gegnum þetta til að færa yfir myndir en ég var í raun mikið sneggri að kippa bara mini-SD kortinu úr símanum og skella í kortalesarann.

þráðlausar bluetooth mýs eru víst farnar að verða vinsælli í fartölvum, en USB þráðlausar mýs gegna líka sama hlutverki, eina sem er með bluetooth-ið að þá sleppur maður við að hafa USB sendinn í.

Langaði bara að athuga að gamni hvort notendur á vaktinni væru að nota bluetooth mikið svona almennt séð og í hvað...
Ég var nefnilega að customiza nýja fartölvu og sá ekki beint þörfina á bluetooth í fljótu bragði.

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Mið 09. Sep 2009 12:04
af Halli25
Bluetooth er svo flott og kúl en held að það sé engin eða lítil þörf á því. Mjög lítið úrval er af Bluetooth búnaði fyrir tölvur og sá búnaður sem er bluetooth er rangdýr þar að auki.

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Mið 09. Sep 2009 12:26
af AntiTrust
Algjört skilyrði þegar ég kaupi mér fartölvur.

Ég nota bluetooth mikið þegar ég fer út á land, sumarbústaðaferðir eða annað, tengi gemsann við tölvuna og nota 3G netið þannig. Nota það líka til að uploada myndum úr camerunni (elska að vera með bluetooth í myndavélinni) og svo tengi ég Bluetooth headphone-in mín oft við hana ef ég er á crowded place.

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Mið 09. Sep 2009 14:01
af ManiO
Hef verið að nota blátönns lyklaborð við HTPC vélina mína, og verð að segja að þessi tækni er ofmetin. Handshakeið er rusl, alltaf að detta út.

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Mið 09. Sep 2009 21:36
af IL2
Hef notað mitt aðeins í Skype og þannig með Headsetti. Annars ekkert.

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Mið 09. Sep 2009 21:58
af Hargo
Ah ætli ég taki þetta ekki bara til öryggis...kostar $20 dollara aukalega.

Kíkti nú aðeins á bluetooth mýsnar og þær eru flestar á 10 þús kall eða meira.

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Mið 09. Sep 2009 22:48
af KermitTheFrog
Notaði bluetooth fyrir transfer úr símanum yfir í tölvuna og öfugt þegar sá sími lifði. Og líka fyrir fjarstýringuna sem fylgdi með lappanum, en annars ekkert mikið.

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Mið 09. Sep 2009 22:52
af Glazier
nota þetta ekki oft en þetta hefur bjargað mér.. t.d. þurfti ég að taka nokkrar myndir/myndbönd/hljóðupptökur úr símanum og í tölvuna og ég var ekki með kortalesara á tölvunni og ekki með snúruna til að tengja símann við tölvuna svo ég notaði þetta :)
Ekki oft sem ég nota þetta en stundum :P
Svo hef ég líka notað símann minn sem fjarstýringu ef ég er að horfa á mynd eða eitthvað í tölvunni.

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Fim 10. Sep 2009 08:43
af lukkuláki
Bráðnausðynlegt :)

Er með bluetooth aukalyklaborð og mús við fartölvuna og bluetooth headset alger snilld.

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Fim 10. Sep 2009 09:03
af Cascade
Mér finnst snilld að nota blueproximity

Láta tölvuna læsa sér þegar ég labba í burtu og opnast þegar ég labba að henni

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Fim 10. Sep 2009 19:48
af lukkuláki
Cascade skrifaði:Mér finnst snilld að nota blueproximity

Láta tölvuna læsa sér þegar ég labba í burtu og opnast þegar ég labba að henni



Já þetta er snilld mig hefur dreymt um svona forrit veistu hvort þetta er til fyrir Windows XP ?
Hef ekki getað fundið það

Re: Bluetooth - nauðsynlegt eða óþarfi?

Sent: Fim 10. Sep 2009 22:40
af dori
Ég á bluetooth lyklaborð og mús sem er auðvitað snilld. Svo er geðveikt að geta tengst netinu yfir símann (3g pungur er ofmetinn ef þú notar það bara sem secondary shit) án þess að þurfa snúru.

Ég myndi ekki kaupa fartölvu í dag án bluetooth.