Síða 1 af 1
Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 09:28
af Hargo
Langaði að heyra frá þeim sem hafa keypt sér fartölvu (eða borðtölvu) gegnum ShopUSA.
Hvernig er ykkar reynsla af þessu?
Ég er mjög heitur fyrir þessu þar sem sú týpa af fartölvu sem mig langar í fæst ekki hér á landi. Eina sem stoppar mann er ábyrgðin og því langaði mig að athuga hvort einhver hafi pantað í gegnum þá og/eða lent í einhverju veseni.
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 12:28
af einarornth
Ég keypti mína í gegnum þá hjá Dell.com.
Ekkert vesen. Þú getur keypt einhverja tryggingu hjá þeim þannig að þeir sendi hana frítt út fyrir þig ef hún bilar. Ég gerði það en þurfti nú aldrei að nýta mér það.
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 12:44
af AntiTrust
Sem tæknimaður á verkstæði myndi ég aldrei mæla með því að kaupa tölvu erlendis frá nema vera með lágmark 1 ár í alþjóðaábyrgð.
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 13:27
af Hargo
Ég veit að HP Lenovo eru með 1 árs international warranty, þarf bara að komast að því hvort hún gildi fyrir Ísland líka.
Væri snilld ef þeir myndu bjóða upp á svona tryggingu aukalega eins og einarornth fékk hjá Dell.
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 13:37
af AntiTrust
Hringja bara niðrí umboð og spyrjast fyrir um, hljóta að geta svarað þessu. Ef Lenevo tölvur eru seldar með/undir IWS ábyrgð er ísland inní þeim hóp.
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 13:40
af Hargo
Ertu þá að tala um að hringja í umboðið á Íslandi eða úti í USA?
Er ekki Nýherji með umboð fyrir þessar tölvur hér á landi?
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 13:44
af AntiTrust
Hargo skrifaði:Ertu þá að tala um að hringja í umboðið á Íslandi eða úti í USA?
Er ekki Nýherji með umboð fyrir þessar tölvur hér á landi?
Jú, Nýherji er með Lenevo og eiga að geta svarað öllum svona fyrirspurnum.
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 14:07
af gardar
ég hef bara góða reynslu af shopusa, nota þá mikið og aldrei lent í veseni.
Annars veit ég að með dell vélarnar er 1 árs alþjóðleg ábyrgð og eftir þetta eina ár geturðu farið niður í ejs og látið þá ástandsskoða vélina og fengið ábyrgð í ár í viðbót... Kostaði 6000kr þegar ég notaði það.
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 14:11
af AntiTrust
Helvíti er það góð þjónusta.
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mán 31. Ágú 2009 14:30
af Hargo
Já það er fjandi góð þjónusta .
En ég var að fá svar frá umboðinu.
Skv. síðunni Lenovo interntaional warranty þá er týpan 2267 ekki í alþjólegri ábyrgð þannig ef þú kæmir með þá vél inn til viðgerðar að þá myndi hún ekki falla undir ábyrgðarviðgerð eins og á vélum sem eru keyptar hérna heima.

** Edit: Var samt að pæla í einu. Ef ég upgreida 1 árs base warranty sem fylgir tölvunni í þetta hérna:
"Upgrade the service included with your hardware's original warranty to At-home delivery. Service level improves from 5 to 7 business days for mail-in repair to often next business day, 9AM to 5 PM for At-home repair. If we can't fix your problem over the phone, we'll schedule repair services or send a replacement for a failing component. In each case, coverage for parts and labor is included. The service period begins with the equipment date of purchase. Service is only available for non-refurbished machines released and purchased in the United States. Next business day service is not available in all areas and other conditions apply."
Þá fengi ég hjálp frá customer service við að eingangra vandamálið ef það væri einhver galli í vélinni og fengi svo varahlutina senda að kostnaðarlausu (veit reyndar ekki hvort það gildi bara um innan USA). Ég gæti þá reynt að taka vélina sjálfur í sundur eða látið Nýherja gera þetta fyrir mig gegn gjaldi.
Er maður að tefla of djarft með þetta?
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mið 02. Sep 2009 00:34
af Hargo
Jæja komið í ljós að ég fæ líklega enga ábyrgð á
Lenovo Ideapad U330 - 22672CU hér á landi.
Núna er ég farinn að skoða Dell Studio XPS 13 vélina. Hún er á svipuðu verði og Idepad vélin, í kringum $1000 dollara. Hjá EJS er þessi vél á
300þús. Með nákvæmlega sömu speccum og EJS vélin þá kostar hún innflutt 212þús (maður getur customizað þetta á Dell heimasíðunni).
Er einhver með reynslu af þessum vélum? Eru þær hljóðlátar? Las á netinu að þær gætu hitnað aðeins undir álagi (hvaða fartölvur gera það svo sem ekki?).
Mér finnst þetta koma sterklega til greina þegar ég er búinn að ganga úr skugga um að það sé alþjóðleg ábyrgð á henni.
Ég prófaði líka að customiza úr 3GB RAM í 4GB DDR3 RAM og úr nVidia GeForce 9400M G integrated yfir í NVIDIA® GeForce® 9500M - 256MB discrete.
Með þessum speccum kostar vélin innflutt gegnum ShopUSA 240þús.
Hver er annars munurinn á integrated graphics og discrete graphics á mannamáli?
Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mið 02. Sep 2009 21:35
af Gúrú
Hargo skrifaði:Hver er annars munurinn á integrated graphics og discrete graphics á mannamáli?
Ég er nokk viss um að integrated þýði að skjákortið taki bara RAM og nýti það í sitt eigið VRAM, og ég geri þá ráð fyrir því að discrete þýði þá að það sé þegar að skjákortið noti eigið VRAM.

Re: Fartölvukaup gegnum ShopUSA?
Sent: Mið 02. Sep 2009 22:39
af Hargo
Já okei, takk fyrir að koma því á hreint
En ég er haldinn svo miklum valkvíða yfir þessu að ég er allaf að skipta um skoðun á þessu öllu saman. Eftir að hafa lesið mikið um Dell XPS 1340 þá komst ég að því að margir eru að kvarta undan viftuhávaða og hitavandamálum. Þegar maður er að fara að splæsa í fartölvu sem kostar yfir 200 kallinn þá vill maður vera með þetta á hreinu.
Núna er ég helst á því að panta mér Thinkpad T400 2764.
ThinkPad T400 - 1 Yr Depot Warranty
Intel Core 2 Duo processor P8700 (2.53GHz 1066MHz 3MBL2)
Operating system: Genuine Windows Vista Home Basic
System graphics: ATI Mobility Radeon 3470 with 256MB
Total memory: 4 GB PC3-8500 DDR3 SDRAM 1067MHz SODIMM Memory (2 DIMM)
Keyboard: Keyboard US English
Pointing device: UltraNav (TrackPoint and TouchPad)
Hard drive: 128 GB Solid State Drive, Serial ATA
Optical device: CD-RW/DVD-ROM Combo 24X/24X/24X/8X Max, Ultrabay Slim (Serial ATA)
System expansion slots: Express Card Slot & 7-1 Media Card Reader
Wireless card: ThinkPad WiFi (BGN)
Mobile Broadband: Integrated Mobile Broadband upgradable
Battery: 6 cell Li-Ion Battery
Power cord: Country Pack North America with Line cord & 90W AC adapter
Language pack: Language Pack US English
Accessories and options:
ThinkPad T400 / R400 14W Privacy Filter 43R2472
Verð: $1181 USD
Innflutt með ShopUSA:
235þúsAð minnsta kosti 1 árs alþjóðleg ábyrgð sem Nýherji þjónustar. Held ég geti svo framlengt hana áfram eftir þann tíma.