Síða 1 af 1
Fartölvu batterís pæling
Sent: Fim 27. Ágú 2009 00:20
af Gerbill
Jæja, var að versla mér minn fyrsta lappa og er að pæla í hvort það séu einhver tips sem þið lummið á til að fara sem best með batteríið.
Veit allaveganna að maður á að hlaða batteríið í sirka 12 tíma í fyrstu 3 hleðslurnar (er í lagi að ég kveiki á henni þegar ég er að fullhlaða hana í fyrsta skipti eða ætti ég bara að láta hana vera?)
Re: Fartölvu batterís pæling
Sent: Fim 27. Ágú 2009 00:24
af KermitTheFrog
Lithium-ion rafhlöður (sem eru í öllum fartölvum) þurfa enga 12 eða 16 eða 24 tíma hleðslu fyrstu hleðslurnar. Það er bara bull. Það er nóg að hlaða hana upp í 100% og nota hana svo bara. Ekki tæma hana alveg og ef þú ætlar að geyma hana til langs tíma án notkunar er best að geyma hana á köldum stað við ca 40% hleðslu.
Re: Fartölvu batterís pæling
Sent: Fim 27. Ágú 2009 00:33
af Gerbill
KermitTheFrog skrifaði:Lithium-ion rafhlöður (sem eru í öllum fartölvum) þurfa enga 12 eða 16 eða 24 tíma hleðslu fyrstu hleðslurnar. Það er bara bull. Það er nóg að hlaða hana upp í 100% og nota hana svo bara. Ekki tæma hana alveg og ef þú ætlar að geyma hana til langs tíma án notkunar er best að geyma hana á köldum stað við ca 40% hleðslu.
Takk fyrir það herra Kermit

en er í lagi að ég kveikji á henni þó ég sé bara búinn að hafa hana i hleðslu í ca hálftíma ?:P
Re: Fartölvu batterís pæling
Sent: Fim 27. Ágú 2009 00:49
af Glazier
Gerbill skrifaði:KermitTheFrog skrifaði:Lithium-ion rafhlöður (sem eru í öllum fartölvum) þurfa enga 12 eða 16 eða 24 tíma hleðslu fyrstu hleðslurnar. Það er bara bull. Það er nóg að hlaða hana upp í 100% og nota hana svo bara. Ekki tæma hana alveg og ef þú ætlar að geyma hana til langs tíma án notkunar er best að geyma hana á köldum stað við ca 40% hleðslu.
Takk fyrir það herra Kermit

en er í lagi að ég kveikji á henni þó ég sé bara búinn að hafa hana i hleðslu í ca hálftíma ?:P
jájá, en annað tips, félagi minn keypti sér fartölvu og 2 vikum seinna (að vetri) fór hann í ferðalag og gisti þar sem lofthitinn var sá sami og úti (einhverjar mínus gráður) og honum leiddist, kveikti á tölvunni, kláraði batteríið og síðan þá hefur batteríið alltaf verið lélegt.