Síða 1 af 1
Besti "mini" laptopinn undir 100 þús?
Sent: Mið 26. Ágú 2009 23:51
af GGG
Hvað finnst mönnum um þennann:
http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1156Er þetta ekki málið ef maður ætlar að fá sér svona lítinn lappa undir 100 þús..?
Re: Besti "mini" laptopinn undir 100 þús?
Sent: Fim 27. Ágú 2009 00:18
af SteiniP
Ég held það.
Hefði ekkert á móti því að eiga einn svona.
Re: Besti "mini" laptopinn undir 100 þús?
Sent: Fim 27. Ágú 2009 00:53
af dori
Er þessi tölva með svona bandarísku lyklaborði? Ég hef mikið verið að skoða þessar netbook í nokkrum verzlunum og mér finnst eins og allir séu að selja bara bandarísk layout (nokkrar undantekningar, apple/dell/hp/packard bell og eitthvað).
Re: Besti "mini" laptopinn undir 100 þús?
Sent: Fim 27. Ágú 2009 10:00
af Sphinx
einn vandi

mamma ætlaði að kaupa ser svona 10" laptop og það er ekki diskadrif i þessu þannig mer fannst voða litið farið i þetta

anars er þetta örugglega mjög þæginleg tölva
Re: Besti "mini" laptopinn undir 100 þús?
Sent: Fim 27. Ágú 2009 10:02
af AntiTrust
Virkuðu alltaf aðeins of dótalega á mig, átti svona 9" týpu og hún var alltaf e-ð svo leikbæjarleg í höndunum á manni.
En ef þessir rafhlöðuendingartímar eru réttir er þetta helvíti sniðugt.
Re: Besti "mini" laptopinn undir 100 þús?
Sent: Fim 27. Ágú 2009 10:40
af dori
Aron123 skrifaði:einn vandi

mamma ætlaði að kaupa ser svona 10" laptop og það er ekki diskadrif i þessu þannig mer fannst voða litið farið i þetta

anars er þetta örugglega mjög þæginleg tölva
Það er ekkert mál að deila diskadrifi af öðrum tölvum á networkinu (ef það er ekki í boði er ekkert mál að fá sér usb drif). CD/DVD er samt svo gott sem dautt medium (ég get talið á fingrum annarrar handar þau skipti sem ég þarf að nota þetta á mánuði) þannig að mér finnst það mjög sniðugt að beila á því í tölvu sem á að vera portable og þú vilt alltaf hafa með þér.
Re: Besti "mini" laptopinn undir 100 þús?
Sent: Fim 27. Ágú 2009 11:01
af start
Re: Besti "mini" laptopinn undir 100 þús?
Sent: Fim 27. Ágú 2009 12:05
af dori
Hvort eruð þið með ANSI eða ISO lyklaborð á eee tölvunum í Start?
Re: Besti "mini" laptopinn undir 100 þús?
Sent: Fim 27. Ágú 2009 12:23
af Televisionary
Ég hef verið með eina svona í töskunni þegar ég er að ferðast sem varavél. Henti í hana 2 GB af minni og skipti disknum út fyrir 500 GB disk. Hefur reynst vel þegar ég hef þurft á henni að halda batterýlífið er nær 5-6 tímum í raun.