Síða 1 af 1

Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Sun 23. Ágú 2009 15:55
af Hargo
Ég er að hugsa um að fá mér nýja fartölvu og er með valkvíða á háu stigi, hehe!

Hún þarf svo sem ekki að spila nýjustu leikina en það væri ágætt ef hún myndi ráða við aðeins eldri leiki eins og COD4, svo spila ég líka Football Manager en flestar tölvu ráða nú við hann. Hún verður einnig að geta þolað forrit eins og Photoshop CS3 og vera með smá firepower því ég á ekki borðtölvu. Ég er með 500GB flakkara sem ég geymi helsta stuffið mitt á þannig að stærð á hörðum diski er kannski ekki aðalatriði en þó alltaf betra ef þeir eru stærri. Ég á núna 17" fartölvu og mig langar svolítið í einhverja minni og nettari því ég verð meira á ferðinni í vetur, er mjög spenntur fyrir 13-14" tölvunum.

Ég hef verið að spá í þessum gripum:

Toshiba Satellite Pro U400-23M 13,3"
Kostar 150þús og er með góðri Toshiba Moneyback ábyrgð. Er með 4GB 800mhz minni, stækkanlegt upp í 8GB. Harði diskurinn er hinsvegar bara 160GB en tölvan sjálf er létt og meðfærileg, aðeins 2kg.

Lenovo Thinkpad SL400 14"
Þessi er dýr, kostar 190þús en með 3 ára ábyrgð. Hef samt alltaf verið hrifinn af Thinkpad vélunum í gegnum tíðina, finnst þær eldast vel og þær þola mikið þó þær séu kannski ekki mikið fyrir augað. Þessi vél er reyndar kominn með glossy backcover. Vinnsluminnið er 2GB 667mhz og getur mest orðið 4GB, Toshiba vélin er betri á því sviði. Sýnist samt á öllu að þessi vél sé með aðeins betri örgjörva heldur en Toshiba vélin og stærri harðan disk, 250GB. Þyngdin á tölvunni er 2,5kg.

Lenovo IPAD U350 13,3"
Þessi er á 150þús. Hún er mjög nett og stylish í útliti en ég set spurningamerki við örgjörvann (Intel Core 2 Solo SU2700 1,3GHz). Þessi er með 16:9 skjá (1366x768) meðan hinar vélarnar eru með 1280x800 punkta. Harði diskurinn í þessari er 250GB og hún er einstaklega létt, 1,6kg.

Allar ábendingar um val eru vel þegnar. Ef þið lumið á fleiri tölvum þá megið þið endilega benda mér á þær. Hef líka verið að skoða þessa Toshiba Satellite Pro A300-293 vél en hún er 15,4" tommu. Sem stendur er ég spenntastur fyrir Toshiba U400 vélinni ásamt Thinkpad, held samt af þeim tveimur þá yrði Toshiba U400 fyrir valinu þar sem hún kostar 40þús kalli minna.

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 08:36
af Hargo
Lenovo IdeaPad U330 226758U fartölvan er farin að heilla mig líka. Hún kostar reyndar 170þús en er með 3GB DDR3 minni, 320GB disk og 512MB Intel X4500 HD DX10 skjástýringu með True HD 1080P. Hef reyndar ekki hugmynd um hvort sú skjástýring sé betri en sú sem Toshiba vélin er með. Hinsvegar er þessi tölva ekki með eSata tengi, ég á reyndar ekki eSata flakkara en það væri gott að vera með þetta ef maður myndi einhver tíma eignast þannig græju.

Þegar uppi er staðið held ég að valið standi á milli Lenovo og Toshiba Satellite U400.

Engar ábendingar eða hugmyndir?

Lenovo vélin er með Intel Dual Core T4200 örgjörva, 2.0GHz, 45nm. Toshiba vélin er með Intel Core 2 Duo T5870 2.0GHz, (2MB í flýtiminni). Hvor er betri? Á ég að taka því þannig að örgjörvinn sem er merktur T5870 sé betri en sá sem er T4200?

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 08:48
af dori
IdeaPad er náttúrulega markaðssett sem netbook svo það er mjög eðlilegt að hún sé með verri örgjörva þannig séð. Reyndar er þetta orðið það stórt að það er á mörkunum hvað þetta nákvæmlega er. En já, ég held alveg örugglega að Toshiba vélin sé með öflugri örgjörva.

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 09:19
af Hargo
Já ég ákvað að setja þetta aðeins upp, valið stendur á milli þessara véla:

Toshiba Satellite U400-23M
• Örgjörvi: Intel Core 2 Duo T5870 2.0GHz, 2MB í flýtiminni
• Breiðtjaldsskjár: 13.3" WXGA TruBrite® Upplausn 1280x800
• Vinnsluminni: 4GB DDR2 800MHz - styður allt að 8GB
• Harður diskur: 160GB Serial-ATA 5400sn. S.M.A.R.T.
• Geisladrif: 8x DVD brennari ±RW Dual Layer
• Skjákort: Intel Graphics Media Accelerator 4500MHD
• Hljóðkort: 24-bit stereo High Definition
• 10/100 netkort og 56k mótald
• Þráðlaust netkort 54Mbps 802.11a/g
• Li-ion rafhlaða, ending allt að 3klst (miðað við Mobile Mark 2007)
• Bluetooth, 3x USB2, FireWire, eSATA tengi
• Innbyggð 1.3 megapixla vefmyndavél
• 5in1 Kortalesari (les flestar tegundir minniskorta)
• Tengi fyrir heyrnartól og hljóðnema
• Stýrikerfi: Windows Vista Business(kemur uppsett) og Windows XP Professional
• Þyngd aðeins 2.0kg
• 2ja ára alheims ábyrgð

Kostir:
- 4GB DDR2 minni 800mhz sem er stækkanlegt upp í 8 GB, auðvelt að upgreida.
- eSata tengimöguleiki.
- Líklega betri örgjörvi heldur en í Lenovo vélinni. Veit að þessi örgjörvi styður 64bit processing. Finnst allavega skynsamlegast að áætla að T5870 > T4200.
- Kostar 20 þús krónum minna en Lenovo.
---------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Lenovo IdeaPad U330 226758U
Örgjörvi - Intel Dual Core T4200 örgjörvi, 2.0GHz, 45nm
Vinnsluminni - 3GB DDR3 1066MHz vinnsluminni
Harðdiskur - 320GB SATA2 harður diskur
DVD skrifari - 8xDVD SuperMulti DL skrifari
Skjár - 13,3" WXGA skjár með 1280x800 upplausn
Skjákort - 512MB Intel X4500 HD DX10 skjástýring með True HD 1080P
Hljóðkerfi - Innbyggðir stereo hátalarar
Lyklaborð - Gott lyklaborð með flýtihnöppum og snertinæmri mús
Netkort - 10/100 netkort og 56K móthald
Þráðlaust - 54Mbps þráðlaust WiFi netkort
Stýrikerfi - Windows VISTA Business eða XP Pro
Rafhlaða - 6-Cell LI-ion rafhlaða með allt að 5.5 tíma endingu
Tengi - 2xUSB2, VGA, módem og fleiri tengi
Þyngd - Aðeins 1,9 kg að þyngd
Kortalesari - Innbyggður kortalesari fyrir flest minniskort
Myndavél - 1.3MP innbyggð vefmyndavél
Ábyrgð 2ja ára ábyrgð á fartölvu - 12 mán rafhlöðuábyrgð

Kostir:
- Stærri harði diskur en í Toshiba, 320GB > 160GB
- 3GB DDR3 1066mhz minni. Veit hinsvegar ekki hvort það sé stækkanlegt. Kostar ekki DDR3 fartölvuminni annan fótlegginn í dag?
- Mér finnst á öllu eins og skjástýringin sem Lenovo er með sé aðeins betri en hjá Toshiba en er þó ekki viss. Las á netinu að það væri HD output á Lenovo, sem er ágætt þar sem ég á HD Ready sjónvarp.

Ég á eftir að skella mér á báða staði í dag til að kíkja á tölvurnar. Það spilar svo auðvitað inn í líka hvort þær séu hljóðlátar og vel kældar. Mér finnst vanta meiri upplýsingar um Lenovo tölvuna, eins og hvort DDR3 minnið sé stækkanlegt, vantar útlistun á tengjum ("fleiri tengi" getur verið margt) og það vantar snúningshraðann á harða disknum (geri þó ráð fyrir að hann sé 5400rpm).

Öll hjálp vel þegin í þessum samanburði.

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 10:28
af Cascade
Hefuru bara áhuga á nýjum vélum?

Einn að selja Thinkpad X61s á partalistanum, frekar smooth vélar að mínu mati:

http://partalistinn.net/ls?&mode=defaul ... d890-01a7c


Til sölu Lenovo ThinkPad X61s
Verðhugmynd: 150000 kr

Um er að ræða 8 mánaða vél með 12,1" UltraLight skjá sem ég notaði í meistaranámi við HÍ. Mjög vel með farin!!!

Verð á vélinni hjá Nýherja var að mig minnir 309þús (fyrir kreppu), en það sem ég hef í huga er ca.150þús.

Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga í 897-0106 eða jsj4@hi.is.

Kveðja,
Jón Smári

Hér fylgja frekari upplýsingar um uppsetningu á vélinni.

•Model: X61s
•Operating System: Vista Business
•CPU: Intel Core 2 Duo 1.6GHz L7500 4MB L2 Cache 800MHz FSB
•Chipset: Intel i965M
•Memory: 2GB 2 Slots, 4GB Max
•Hard Drive: 160GB
•Screen: 12" XGA UltraLight 1024x768 180 nits
•Graphics Card: Intel X3100
•Wireless: ThinkPad A/B/G/N
•Inputs: 88 Key Keyboard, PointStick with UltraNav Buttons
•Buttons: Power, ThinkVantage, Power Up and Down, Mute, and WiFi/Bluetooth On/Off Switch
•Ports:
◦Three USB Ports - One Left Side, Two Right Side
◦Four Pin FireWire
◦Ethernet and Modem
◦VGA Out
◦Headphone and Microphone Jacks
•Slots:
◦SD Card Reader
◦Express Card Slot
◦Dock Connector
•Battery : Eight Cell
•Dimensions With Eight Cell Battery:
◦Width - 10.5"
◦Depth - 9.4"
◦Height - 0.8"(Front) / 1.4"(Rear)
•Weight: 3.3 Lbs.
•Warranty: Three Years

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 10:37
af Orri
Þú ert ekki að fara að spila COD4 á þessum fartölvum.
Allar þessar fartölvur eru með sama Intel skjákortið, sem er ekki gert fyrir þrívíddar grafík.
Reyndu að finna tölvu með ATI eða Nvidia skjákort, þó veit ég ekki hvað svoleiðis fartölvur eru að kosta og hvort þær eru til 13"...

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 11:11
af Cascade
Orri skrifaði:Þú ert ekki að fara að spila COD4 á þessum fartölvum.
Allar þessar fartölvur eru með sama Intel skjákortið, sem er ekki gert fyrir þrívíddar grafík.
Reyndu að finna tölvu með ATI eða Nvidia skjákort, þó veit ég ekki hvað svoleiðis fartölvur eru að kosta og hvort þær eru til 13"...


Dell studio xps 13 t.d.

Þær kosta reyndar held ég 300k hjá ejs

En ef þú hefur áhuga að kaupa vél af gæja sem er að flytja þetta sjálfur inn (eða hvernig sem hann gerir það..)

Þá er þetta gæinn sem er alltaf að auglýsa á partalistanum og barnalandi, ég fékk þetta svar í lok júlí, alveg hörku spekkar á síðustu vélinni

Ég get reddað þessari á 169.000 kr

Dell XPSM1330, Intel Core 2 Duo 2.0ghz (T6400), 13.3"WXGA TFT with Truelife,
2.0MP Cam, 4Gig Ram, 500 gig, DVDRW, Lan, Wireless, Bluetooth, 6 Cell,
FingerPrint Reader

Hér er svo ein ódýrari eða 159.000 kr

Dell XPSM1330 Slim!, Intel Core 2 Duo 1.83ghz, 13.3"WXGA LED TFT with
Truelife, 2.0MP Cam, 2Gig Ram, 160 gig, DVDRW, Lan, Wireless, Remote,
FingerPrint Reader, 6 Cell Battery

Hér er svo besta vélin 179.000 kr

Dell Studio XPS13, Intel Core 2 Duo 2.4ghz (P8600), 13.3"WXGA LED TFT with
Truelife, Nvidia Geforce 9400, 2,0MP Cam, Facial Recognition, 4Gig Ram, 320
gig, DVDRW, Lan, Wireless-N, Bluetooth

Kv
Lárus

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 11:15
af Hargo
Orri skrifaði:Þú ert ekki að fara að spila COD4 á þessum fartölvum.
Allar þessar fartölvur eru með sama Intel skjákortið, sem er ekki gert fyrir þrívíddar grafík.
Reyndu að finna tölvu með ATI eða Nvidia skjákort, þó veit ég ekki hvað svoleiðis fartölvur eru að kosta og hvort þær eru til 13"...


Grunaði það svo sem. Held það sé ekki hlaupið að því að finna svona litlar og nettar fartölvur með Nvidia eða ATI, auk þess sem það þrýstir eflaust verðinu í 200þús kallinn eða yfir.

Ég verð bara að sætta mig við það, ég er heldur ekkert oft að spila COD4, greip stundum í hann þegar mér leiddist. Svo lengi sem þær ráða við Football Manager þá uppfylla þær mínar kröfur um leikjaspilun, nota Playstation 3 tölvuna í hina leikjaþörfina.

En varðandi þennan barnalands dúdda sem er að flytja þetta inn, er það alveg safe? Er maður þá ekki að fórna ábyrgðinni þar sem vélin er þá í ábyrgð erlendis?

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 11:23
af Cascade
Veit ekki alveg með ábyrgðina, endilega spurðu gaurinn, emailið hans er: larus@shopusa.is

En er þetta ekki þannig að ef lappinn virkar til að byrja með þá er hann ekkert að bila, nema af illri meðferð?


En það leiðinlega við þetta er að það er væntanlega USA layout á lyklaborðinu, þeas stór shift takki og enginn "<>|" takki
En fyrir þennan verðmun er alveg hægt að réttlæta það


Annars eru nánast allar tölvur undir 200k með dönsku lyklaborði og svo límmiðar til að fá íslensku stafina á það. Alveg sama layout, finnst bara smá lame að hafa límmiða á lyklaborðinu

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 11:34
af dori
Það er náttúrulega bara árs ábyrgð á raftækjum frá framleiðanda. Ef þú kaupir hana hérna heima er hins vegar 2ja ára ábyrgð skv. ísl lögum. Það kemur alveg oft fyrir að eitthvað bili í fartölvum (t.d. móðurborð og skjáir) og það gerist mjög oft eftir ~2-3 ár ef það gerist (mín reynsla bara). Gerist auðvitað miklu frekar ef þú ert að ferðast með tölvuna heldur en ef hún er bara á sama stað alltaf.
Varðandi lyklaborð þá er pottþétt bandarískt lyklaborð (ANSI, þetta sem er með funky enter takka). Það er reyndar líka þannig á fartölvum í búðum eins og tölvutek (voru með ISO á Packard Bell tölvunum) og att (og pottþétt fleirum). Elkó er með danskt layout með límmiðum, svo eru þessar stærri sjoppur (apple búðin, nýherji og kannski ejs/opin kerfi) með alvöru íslenskt layout.

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 11:46
af Hargo
Ég sá aðrar útgafur af Lenovo IdeaPad með ATI korti, Lenovo IdeaPad U330 - 22672CU ($1049) og Lenovo IdeaPad U330 - 22672EU ($849). Þær eru með ATI Radeon HD 3450 256MB. Sýnist í fljótu bragði að allir aðrir speccar séu þeir sömu og í vélinni sem ég var að skoða hér að ofan, fyrir utan örgjörvann. Sá örgjörvi er væntanlega betri en í þeirri útgáfu sem ég var að skoða hjá Tölvutek. Ideapad U330-22672CU er með Intel® Core™ 2 Duo Processor P7350 ( 2GHz 1GHz 3MB ) og Ideapad U330-22672EU er með Intel® Core™ 2 Duo processor T6400 ( 2GHz 800MHz 2MB ). Þessi sem ég var að skoða hjá Tölvutek var bara með Intel T4200.

Þarf samt að fara á stúfana og skoða þessi USA layout á lyklaborðum til að sjá hvernig þau eru.

Ætla að senda línu á þennan Lárus og athuga hvað hann getur gert fyrir mig.

Takk fyrir ábendinguna Cascade.

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 12:05
af Cascade
Myndir teknar af wikipedia:

US Layout:

Mynd

Danskt layout (sem flestar búðir setja límmiða á til að fá íslenska stafi)
Mynd

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 12:16
af AntiTrust
Renndi yfir þráðinn í fljótu bragði :

Eina sem ég get sagt er að það er ekkert val á milli Lenevo og Toshiba, ekki í mínum huga allavega.

Toshiba = Meh VS. Lenevo = Top of the line.

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 12:18
af Hargo
Það er nú alveg hægt að venjast þessu ef maður fær rétt verð fyrir hlutinn... :)

Sló inn $1049 dollara í ShopUSA reikningsvélina á heimasíðunni þeirra, fékk út 212þús. Það er vel yfir budget limitinu hjá mér.

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 12:31
af Hargo
AntiTrust skrifaði:Renndi yfir þráðinn í fljótu bragði :

Eina sem ég get sagt er að það er ekkert val á milli Lenevo og Toshiba, ekki í mínum huga allavega.

Toshiba = Meh VS. Lenevo = Top of the line.


Það eina sem kemur í veg fyrir að ég skelli mér á þessa Lenovo vél hjá Tölvutek er örgjörvinn, er e-ð efins með hann.

Svo ég sé nú ekki að misskilja þig með þessum samasem merkjum, finnst þér þá Lenovo vera betri en Toshiba?

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 12:37
af AntiTrust
Hargo skrifaði:
AntiTrust skrifaði:Renndi yfir þráðinn í fljótu bragði :

Eina sem ég get sagt er að það er ekkert val á milli Lenevo og Toshiba, ekki í mínum huga allavega.

Toshiba = Meh VS. Lenevo = Top of the line.


Það eina sem kemur í veg fyrir að ég skelli mér á þessa Lenovo vél hjá Tölvutek er örgjörvinn, er e-ð efins með hann.

Svo ég sé nú ekki að misskilja þig með þessum samasem merkjum, finnst þér þá Lenovo vera betri en Toshiba?


Langt, langt, langtum betri vélar.

Búinn að eiga á annan tug fartölva, af öllum sortum. Búinn að vinna sem þjónustuaðili fyrir Toshiba o fl., og þekki vel til Lenevo vélanna.

Myndi aldrei, aldrei, aldrei fá mér Toshiba framyfir Lenevo. Gæðamunurinn er slíkur, með fyrirvara um þó að það eru til týpur frá báðum framleiðendum sem eru betri/verri en gengur og gerist frá þeim framleiðanda.

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 12:44
af Hargo
AntiTrust skrifaði:Langt, langt, langtum betri vélar.

Búinn að eiga á annan tug fartölva, af öllum sortum. Búinn að vinna sem þjónustuaðili fyrir Toshiba o fl., og þekki vel til Lenevo vélanna.

Myndi aldrei, aldrei, aldrei fá mér Toshiba framyfir Lenevo. Gæðamunurinn er slíkur, með fyrirvara um þó að það eru til týpur frá báðum framleiðendum sem eru betri/verri en gengur og gerist frá þeim framleiðanda.


Af þessum tveimur vélum sem ég er að skoða, myndirðu þá taka Lenovo U330 fram yfir Toshiba Satellite U400 ?

Er bara vitleysa í mér að vera hræddur um að þessi örgjörvi sé ekki nægilega öflugur?

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 13:05
af AntiTrust
T5870 er auðvitað öflugri en T4200, ég myndi bara googla vel hvort að báðir örgjörvar styðja ekki flestallt sem þú ætlar þér. Ef T4200 dugar þér, ekki spurning um að taka Lenevo tölvuna. En eins og það er búið að koma fram, þá eru hvorugar þessar vélar leikjatölvur ;)

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 14:25
af Hargo
Já ég enda eflaust með því að fá mér Lenovo U330 hjá Tölvutek um mánaðarmótin.

Það eru bara svo fáir að selja þessar IdeaPad vélar, er það ekki bara Tölvutek og Nýherji? Finnst úrvalið ekkert svakalegt, það eru til margar gerðir af IdeaPad U330, fyrst ég er á annað borð að fara að splæsa 170þús krónum í nýja vél þá sæi ég ekkert svo mikið á eftir extra 10-15 þús fyrir öflugri örgjörva. Var svona að pæla í að senda fyrirspurn á Nýherja og athuga hvort þeir myndu panta fyrir mann aðrar útgáfur af IdeaPad en efast um það, verðið myndi líka eflaust fara yfir 200þús kallinn.

Fann speccana fyrir Lenovo örrann.

Fann líka speccana fyrir Toshiba örrann (reyndar T5800 en ekki T5870)

Sýnist á öllu að Toshiba örrinn sé 65nm og Lenovo 45nm, sem þýðir þá að Lenovo örrinn þarf minni orku og hitnar minna, ekki satt? En Toshiba örrinn er með meira cache.

En annars er ég ekkert að fara í neina leikjaspilun (fyrir utan Football Manager), fæ bara alltaf valkvíða þegar ég þarf að upgreida tölvubúnaðinn minn, hehe.
Tölvan verður aðallega notuð í skólann; einhverja forritun, einhverja gagnavinnslu býst ég við, smá photoshop cs3 og svo auðvitað almennt netráp og kvikmyndaáhorf þegar manni leiðist. Nokkuð viss um að T4200 dugi mér alveg og svo er 3GB DDR3 1066mhz vinnsluminnið á sínum stað.

En hefur einhver af ykkur upgreidað vélbúnað í fartölvum? Þá er ég að tala um e-ð annað en bara vinnsluminnið, eins og CPU eða skjákortið? Er það yfirleitt ekki gert?

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 14:29
af AntiTrust
45nm er kaldari CPU, vital atriði fyrir laptop CPU.

Það er auðvitað hægt að upgrade-a CPU í fartölvum, borgar sig bara yfirleitt ekki þar sem flest annað í vélinni er miðað við þann CPU sem er í vélinni af framleiðslulínunni. Skjákort og annað upgrade-aru ekki nema það sé standalone, ekki hægt ef um skjástýringu er að ræða (innbyggt á móðurborð).

Aukið vinnsluminni og stærri harður diskur, þetta er svona það mesta sem þú gerir í sambandi við fartölvur.

Lenevo tölvan á líklega eftir að endast þér mikið lengur en Toshiba vélin, bæði tölvan sjálf og rafhlaðan sérstaklega. Líka allskonar fítusar sem Lenevo vélarnar eru með en Toshiba ekki, né aðrir ef út í það er farið.

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 14:39
af Hargo
Renni við í Tölvutek seinnipartinn í dag eða morgun og kíki á gripinn.

Takk kærlega fyrir þessar ábendingar AntiTrust, þú ert búinn að slá all verulega á valkvíðann og gera valið auðveldara :)

Re: Hjálp við val á 13"-14" fartölvu

Sent: Mán 24. Ágú 2009 19:10
af Hargo
Nú fékk ég allt í einu þá flugu í hausinn að panta mér tölvu að utan.

Langar svakalega mikið í Lenovo IdeaPad U330 - 22672CUsem kostar $1049 dollara sem gera um 135þús íslenskar kr.

Ef ég myndi fá einhvern til að senda hana til Íslands fyrir mig þar sem Lenovo heimasíðan sendir bara heim innan USA. Félagi minn býr einmitt í USA, er að hugsa um að tékka á honum. Ég myndi borga virðisaukaskattinn hér heima sem væri þá 33þús krónur. Ég myndi svo auðvitað þurfa að borga sendinguna heim til Íslands. Á UPS sló ég inn pakkastærðina og rúmlega þyngd (gerði ráð fyrir 7 pundum á pakkann) þá kostaði hún 158 dollara með tryggingu og ætti að berast heim að dyrum innan 2 daga. 158 dollarar eru um 20þús krónur,

Samtals yrði þetta þá 135+33+20 = 188þús.
Ég væri að fá öflugri tölvu fyrir 18þús krónum meira en tölvan sem ég ætlaði kaupa hjá Tölvutek (kostar 170þús þar).

Með því að gera þetta gegnum ShopUSA þá kostar þetta 212þús (skv. reiknivélinni). Ég sendi reyndar einnig email á þennan Lárus eins og Cascade mælti með og hann er búinn að svara, ætlar að athuga hvað hann getur boðið mér. Þeir sjá um ábyrgðina sjálfir á ShopUSA þannig að það ætti að vera safe, þeir kaupa líka bara þekkt merki segir hann.

Lenovo IdeaPad U330 - 22672CU
CPU: Intel® Core™ 2 Duo Processor P8600 ( 2.40GHz 1066MHz 3MB )
Operating system: Genuine Windows Vista Home Premium 64
Graphics: ATI Radeon HD 3450 256MB
4 GB PC3-8500 DDR3 SDRAM 1066MHz
13.3 " WXGA TFT with integrated camera AntiGlare 1280x800
320GB 5400
DVD Recordable
6 Cell Lithium-Ion
Intel Wireless Wi-Fi Link 5100
Bluetooth Version 2.0 + EDR
Warranty: 1 year

Helsti munurinn á þessum speccum og speccunum á tölvunni hjá Tölvutek er örgjörvinn, skjákortið og vinnsluminnið. Spurning hvort það komi niður á battery líftímanum þar sem batteryin eru eins.

Aðalmálið er ábyrgðin. Það er þá varla 2 ára ábyrgð á gripnum, ef hann feilar þá er ég screwed þannig að ég er þá að taka svolitla áhættu ef ég geri þetta sjálfur. Hinsvegar er þetta þekkt gæðamerki en það er alltaf möguleiki á galla sama hvað tölvan heitir. Ég man þegar ég keypti mér Ipod í USA, þá var einhver alheimsábyrgð. Er ekkert þannig á svona fartölvum? En svo ef ég geri þetta gegnum ShopUSA þá er ég meira safe, spurning hvað það kostar.

Kitlar helvíti mikið að gera þetta svona...