Síða 1 af 1

Kaup á Fartölvu

Sent: Fös 21. Ágú 2009 02:48
af Gerbill
Er að leita mér að tölvu fyrir skólann og rakst á http://ejs.is/Pages/970/itemno/TV-INSP15%252310-BLACK
Líst ágætlega á svo sem, einhverjir sem eiga/vita um svona tölvur og geta sagt mér hvernig þær séu að meika sig?

Re: Kaup á Fartölvu

Sent: Fös 21. Ágú 2009 02:56
af efukt1
Allir að segja að maður eigi ekki að fá sér dell.. ég hef samt ekki reynslu á þeim þannig ég hef ekki hugmynd.

Re: Kaup á Fartölvu

Sent: Fös 21. Ágú 2009 03:07
af AntiTrust
efukt1 skrifaði:Allir að segja að maður eigi ekki að fá sér dell.. ég hef samt ekki reynslu á þeim þannig ég hef ekki hugmynd.


Allir ? Viss um það vinur?

Dell eru fínar vélar, þótt þær eigi það til að bila eins og allar aðrar fartölvur.

Búinn að kynnast þessum i15 vélum ágætlega og líkar vel við þær, fínar vélar fyrir peninginn og Dell hafa alltaf verið áreiðanlegar vélar.

Re: Kaup á Fartölvu

Sent: Fös 21. Ágú 2009 11:28
af Halli25
Gerbill skrifaði:Er að leita mér að tölvu fyrir skólann og rakst á http://ejs.is/Pages/970/itemno/TV-INSP15%252310-BLACK
Líst ágætlega á svo sem, einhverjir sem eiga/vita um svona tölvur og geta sagt mér hvernig þær séu að meika sig?

Dell er fínt merki en 119.990 fyrir vél með celeron örgjörva???
http://www.att.is/product_info.php?prod ... 4f5e0ee191 hmmm

Re: Kaup á Fartölvu

Sent: Fös 21. Ágú 2009 11:42
af AntiTrust
faraldur skrifaði:
Gerbill skrifaði:Er að leita mér að tölvu fyrir skólann og rakst á http://ejs.is/Pages/970/itemno/TV-INSP15%252310-BLACK
Líst ágætlega á svo sem, einhverjir sem eiga/vita um svona tölvur og geta sagt mér hvernig þær séu að meika sig?

Dell er fínt merki en 119.990 fyrir vél með celeron örgjörva???
http://www.att.is/product_info.php?prod ... 4f5e0ee191 hmmm


Tók reyndar ekki eftir því að það væri Celeron, datt ekki einu sinni í hug að það platform væri enn notað, orðið margra ára gamalt.

Hinsvegar skulum við ekki láta okkur detta í hug að bera saman Dell og Acer ;)

Re: Kaup á Fartölvu

Sent: Fös 21. Ágú 2009 15:03
af Gerbill
Já tók heldur ekki eftir Celeron örgjörvanum, eftir að skoða smá þá líst mér betur á að panta frá http://www.bestbuy.com/site/olspage.jsp ... 8089774715
og láta ShopUSA sjá um sendinguna.
Ætti að vera um 90 þús.
En eitt sem ég er ekki alveg viss um, í reiknivélina hjá shopUSA á ég bara að slá inn vörugjaldið eða á ég að hafa sendingarkostnaðinn með?

Re: Kaup á Fartölvu

Sent: Fös 21. Ágú 2009 15:24
af AntiTrust
Hvernig er með ábyrgð á Dell frá USA?

Re: Kaup á Fartölvu

Sent: Fös 21. Ágú 2009 15:28
af Gerbill
Warranty Terms - Parts
1 year
Warranty Terms - Labor
1 year

Re: Kaup á Fartölvu

Sent: Fös 21. Ágú 2009 15:44
af AntiTrust
Gerbill skrifaði:Warranty Terms - Parts
1 year
Warranty Terms - Labor
1 year


Er þetta heimsábyrgð eða þarftu að koma henni sjálfur út til söluaðila?

Re: Kaup á Fartölvu

Sent: Lau 22. Ágú 2009 01:16
af Gerbill
AntiTrust skrifaði:
Gerbill skrifaði:Warranty Terms - Parts
1 year
Warranty Terms - Labor
1 year


Er þetta heimsábyrgð eða þarftu að koma henni sjálfur út til söluaðila?


Heyrðu...nú er ég bara ekki viss.