Síða 1 af 1
DDR og DDR2
Sent: Þri 18. Ágú 2009 01:11
af Turiel
Ef tölva er með DDR minni er einhver séns á því að hún taki DDR2(Svo lengi sem það sé sama stærð)? Persónulega efast ég um það, hinsvegar veit ég ekkert sérstaklega mikið um fartölvur.
· DDR SODIMM 200p minni
· DDR2 SODIMM 200p minni
Re: DDR og DDR2
Sent: Þri 18. Ágú 2009 01:17
af AntiTrust
SODIMM er fartölvuminni, svo í þessu tilfelli nei, enginn séns.
Á sumum borðtölvumóðurborðum eru hinsvegar bæði socket fyrir DDR og DDR2, en hinsvegar tekur sama socket svo ég best viti aldrei bæði, sér socket fyrir hvert þar sem pinnarnir eru ekki eins.
Re: DDR og DDR2
Sent: Þri 18. Ágú 2009 01:19
af coldcut
Varla í fartölvu þar sem móðurborðin eru oftast gerð sérstaklega fyrir innvolsið í henni.
Re: DDR og DDR2
Sent: Þri 18. Ágú 2009 01:21
af AntiTrust
Minnið myndi bara einfaldlega ekki passa í moðurborðið þar sem raufin á DDR og DDR2 er ekki á sama stað.
Re: DDR og DDR2
Sent: Þri 18. Ágú 2009 01:23
af Turiel
Ok bjóst við því, takk fyrir snögg viðbrögð.