Síða 1 af 1

Tengja Fartölvu í Sjónvarp

Sent: Lau 07. Mar 2009 11:34
af UrbanShit
Hvernig get ég tengt fartölvuna mína við sjónvarpið mitt (HDMI, SCART, og það helsta er í því)... Fartölvan er með S-video pluggi...

Ég tími ekki í sjónvarpsflakkara akkúrat núna en er að pæla hvernig snúru ég þarf til að spila bíómyndir í sjónvarpinu með hljóði auðvitað.

Re: Tengja Fartölvu í Sjónvarp

Sent: Lau 07. Mar 2009 11:43
af Ezekiel
Ef að sjónvarpið þitt er með HDMI, þá væntanlega notarðu það, HDMI leyðir hljóð og mynd í einum stafrænum kapli.

edit: sá ekki að lappinn var bara með S-Video, þú átt að geta notað það til að fá mynd og getur bara reddað þér RCA kapli til að tengja í sjónvarpið.

Re: Tengja Fartölvu í Sjónvarp

Sent: Lau 07. Mar 2009 11:43
af hagur
Er lappinn þinn með HDMI eða DVI tengi? Ef svo er, þá er best að nota þau. Ef lappinn er með DVI, þá geturðu notað DVI -> HDMI breytistykki og svo HDMI kapal í sjónvarpið.

Ef lappinn er bara með VGA og sjónvarpið er líka með VGA, þá myndi ég nota VGA -> VGA snúru.

Ef sjónvarpið er ekki með VGA, þá hugsa ég að ég myndi bara sætta mig við S-Video -> S-Video (Sjónvarpið hlýtur að vera með S-Video tengi.)

Ef svo ólíklega vill til að sjónvarpið er ekki með S-Video tengi, þá þarftu að fá þér snúru með S-Video á öðrum endanum og SCART á hinum. Sjónvörp hafa yfirleitt eitt SCART tengi sem styður S-Video, eða er a.m.k hægt að stilla á S-Video. Ef það er ekki rétt stillt, þá færðu svarthvíta mynd.

Í öllum tilfellum hér að ofan þarftu svo auka snúru fyrir hljóð. Kannaðu hvort að sjónvarpið sé ekki með RCA eða 3.5mm jack inngang fyrir hljóð. Keyptu svo viðeigandi snúru, þ.e annaðhvort 3.5mm -> 3.5mm eða 3.5mm -> 2RCA (Hvítt/Rautt).

Re: Tengja Fartölvu í Sjónvarp

Sent: Lau 07. Mar 2009 12:54
af UrbanShit
Sælir, ég er ekki mikið inni í þessu...

Set hérna myndir af tengjunum á sjónvarpinu :D

En á lappanum er S-ideo og VGA tengi...

Veit að myndirnar eru lélegar en það er þröngt á bakvið sjónvarpið og ég nennti ekki að færa það...

Sjónvarpið:

Mynd
Mynd
Mynd

Re: Tengja Fartölvu í Sjónvarp

Sent: Lau 07. Mar 2009 14:05
af viddi
færð þér bara vga kapal og tengir úr vga á lappanum í RGB in (PC/DTV)

Re: Tengja Fartölvu í Sjónvarp

Sent: Lau 07. Mar 2009 14:33
af UrbanShit
viddi skrifaði:færð þér bara vga kapal og tengir úr vga á lappanum í RGB in (PC/DTV)


Ok, er það ekki bara fyrir myndina eða? hvar er þá hjóðið...

Re: Tengja Fartölvu í Sjónvarp

Sent: Lau 07. Mar 2009 15:16
af hagur
Sammála Vidda, VGA -> VGA er þægilegast fyrir þig og einfaldast til að fá mynd í fínum gæðum á sjónvarpið.

Til að fá hljóð þarftu aðra snúru. Nánar tiltekið 3.5mm JACK -> 3.5mm JACK. Annar endinn fer í audio out/headphones tengið á lappanum og hin fer í AUDIO(RGB/DVI IN) tengið á sjónvarpinu. (Þetta litla hringlótta sem er við hliðina á RGB/PC/DTV tenginu). Þegar þú stillir svo sjónvarpið á RGB/PC/DTV þá mun hljóðið úr tölvunni heyrast líka.

Þetta er hljóðsnúran sem þú þarft: http://www.computer.is/vorur/6426 (Velur þér bara þá lengd sem hentar best)

Re: Tengja Fartölvu í Sjónvarp

Sent: Lau 07. Mar 2009 20:04
af UrbanShit
Ok, snilld.

Takk allir fyrir fljót og góð svör :D