Carragher23 skrifaði:Daginn, er að spá hvort það fari nokkuð illa með tölvuna að vera með hana alltaf í rúminu. Hef tekið eftir því að þegar ég er með hana þá hitnar hún alltaf rosalega mikið svona þegar ég snerti undir og svo er viftan oft miklu meira í gangi og hljóðmeiri en venjulega ? Bara pæling

Það er ellt í lagi að vera með hana í rúminu en hún sýgur meira ryk inn í sig og ef þú 'blokkerar' opið þar sem vélin sýgur inn loft til að kæla örrann og kubbasettin þá er ekkert skrítið að hún hitni svakalega.
Það er hægt að fá fína púða með hörðu plastborði í IKEA til að hafa fartölvuna á í rúminu og í kjöltunni eða eins og einver sagði að vera allavega með bók undir henni því oftast þá sýgur vélin inn loft frá botninum (undir vélinni) og þú skalt líka ekki blokkera þar sem vélin blæs heita loftinu út, oft aftan á vélinni.
Pældu aðeins í þessu og þá lifir tölvan sennilega lengur og minna um bluescreen og önnur leiðinda vandamál. Svo er gott að blása rykið úr kælinguni annað slagið til að fá betri kælingu.