Síða 1 af 1

HP USA Power Brick

Sent: Sun 17. Ágú 2008 00:09
af bjornvil
Sælir

Ég er með þriggja ár gamla HP Pavilion ZD8000 keypta í USA. Það virðist vera eitthvað vesen á aflgjafanum hennar.

Mig vantar svo að prufa annan aflgjafa við tölvuna til að vera viss um að þetta sé örugglega ekki tölvan sjálf, en þeir hjá Opnum Kerfum eiga ekki svona USA spec aflgjafa.

USA tengið sem fer í tölvuna er sem sagt frábrugðið Euro tenginu, þannig að það verður að vera aflgjafi af tölvu frá Ameríku.

Er einhver hérna sem á HP tölvu frá Ameríku sem væri til í að leyfa mér að plugga minni í samband??? :)

Tengið lítur nákvæmlega svona út, aflgjafinn er 135w.
Mynd

Re: HP USA Power Brick

Sent: Sun 17. Ágú 2008 00:55
af lukaszexx
WTF? :shock:

Re: HP USA Power Brick

Sent: Sun 17. Ágú 2008 10:28
af bjornvil
lukaszexx skrifaði:WTF? :shock:


Hvað.. er þetta eitthvað torskilið?

Re: HP USA Power Brick

Sent: Sun 17. Ágú 2008 10:57
af Zorglub
Er ekki bara málið að skokka með hann inn á næsta verkstæði og láta mæla hverju hann er að skila út ?

Re: HP USA Power Brick

Sent: Sun 17. Ágú 2008 11:50
af bjornvil
Zorglub skrifaði:Er ekki bara málið að skokka með hann inn á næsta verkstæði og láta mæla hverju hann er að skila út ?


Ég var nú að sækja hana á verkstæði þar sem hann ætlaði að keyra eitthvað stresstest sem náðist aldrei að klárast þar sem hún drap bara á sér. Veit ekki til þess að hann hafi mælt aflgjafann.

Þetta er ferlega furðulegt, hún gengur fínt eina stundina, svo allt í einu bara púff, dauð! Eftir það get ég ekki startað henni í einhvern tíma, hún byrjar að kveikja á sér, svo slær aflgjafinn út eftir nokkrar sekúndur.

Ég hef lesið á nokkrum spjallsíðum að þessar tölvur ættu að nota 180w aflgjafa þar sem þær eru með það orkufrekann örgjörva, en hún hefur gengið fínt í 3 ár á þessum aflgjafa.