Síða 1 af 1

Dell Inspiron 1520 - rafmagnsvesen

Sent: Mið 07. Maí 2008 12:27
af coldcut
Daginn

Ég er hérna með Dell Inspiron 1520 vél sem er keypt síðasta haust og þannig er mál með vexti að hún slekkur alltaf á sér þegar maður tekur hana úr sambandi, þótt að batteríiið sé fullhlaðið. Einhver sem hefur lent í því sama eða kannast við þetta?

Mín ágiskun er að þetta sé bara bilað/ónýtt batterí því ég lenti í svipuðu með HP fartölvuna mína en þar kom þetta ekki fyrr en eftir 3 ár. Og ef þetta er ónýtt batterí er það þá í ábyrgð?

Re: Dell Inspiron 1520 - rafmagnsvesen

Sent: Mið 07. Maí 2008 13:02
af lukkuláki
Deyr hún bara strax þegar þú tekur pluggið úr ?
Vélin er greinilega í ábyrgð (keyptir hana í haust) farðu og láttu líta á þetta hjá EJS ;)

Re: Dell Inspiron 1520 - rafmagnsvesen

Sent: Mið 07. Maí 2008 13:39
af coldcut
já hún deyr um leið og hún er tekin úr sambandi og þegar maður kveikir þá kemur eitthvað; "Windows has recovered from an unexpected shutdown blablablabla"

en núna virðist þetta vera í fínu lagi...þetta gerðist alltaf í gær en núna er ég með tölvuna inní sjónvarpsherbergi og tölvan er ekki tengd!

en þú talar um EJS...ég keypti tölvuna af söluaðila hérna uppá Skaga, er þá hægt að fara með hana í EJS í skoðun? fer nefnilega ekki með hana í skoðun hér því þá fæ ég hana aldrei fyrr en í fyrsta lagi næsta haust aftur! =/

Re: Dell Inspiron 1520 - rafmagnsvesen

Sent: Mið 07. Maí 2008 16:10
af mind
Nokkuð líklegt að sá aðili á skaganum hafi keypt hana af EJS.

Ef svo er þá er ekkert til fyrirstöðu að fara með vélina beint til EJS. Ef eitthvað þá einfaldar það bara hlutina.

Re: Dell Inspiron 1520 - rafmagnsvesen

Sent: Mið 07. Maí 2008 20:36
af lukkuláki
coldcut skrifaði:já hún deyr um leið og hún er tekin úr sambandi og þegar maður kveikir þá kemur eitthvað; "Windows has recovered from an unexpected shutdown blablablabla"

en núna virðist þetta vera í fínu lagi...þetta gerðist alltaf í gær en núna er ég með tölvuna inní sjónvarpsherbergi og tölvan er ekki tengd!

en þú talar um EJS...ég keypti tölvuna af söluaðila hérna uppá Skaga, er þá hægt að fara með hana í EJS í skoðun? fer nefnilega ekki með hana í skoðun hér því þá fæ ég hana aldrei fyrr en í fyrsta lagi næsta haust aftur! =/



Jú kemur bara með hana beint ef það hentar þér betur.