Síða 1 af 1

Bilun í Dell Fartölvu

Sent: Þri 06. Maí 2008 16:20
af Andrik
Er með nokkurra ára gamla Dell fartölvu, sem hefur staðið sig mjög vel hingað til, er að mínu mati alls ekki orðin úrellt ennþá.

En vandamál poppaði upp í fyrradag sem lýsir sér þannig að skjárinn varð mjög leiðinlega rauðleitur, skiptist eiginlega upp í hálfgegnsægja rauða kassa/rendur sem blikka á fullu ef maður hreyfir eitthvað á skjánum.

Bilað skjákort? Bilaður Skjár? Dugir Format?

Ef einhver kannast við þetta þá væri frábært að fá lausn á þessu.

Re: Bilun í Dell Fartölvu

Sent: Þri 06. Maí 2008 16:57
af TechHead
ef þú getur tekið "Screenshot" af biluninni þá er þetta skjákortið, ef ekki þá er þetta skjárinn.

Re: Bilun í Dell Fartölvu

Sent: Lau 02. Ágú 2008 21:59
af Mr.Network
Sæll,

Annaðhvort er skjárinn að fara eða móðurborðið.

Re: Bilun í Dell Fartölvu

Sent: Sun 03. Ágú 2008 14:08
af KermitTheFrog
þetta er móbóið.. lenti í þessu með HP tölvuna mína og þú þarft einfaldlega bara nýtt móðurborð.. ef hún er enn í ábyrgð ættiru að geta farið með hana og þeir græja þetta endurgjaldslaust

Re: Bilun í Dell Fartölvu

Sent: Sun 03. Ágú 2008 17:43
af Pandemic
Algengt vandamál á eldri Dell vélum á eina gamla hérna heima sem er með svipað vandamál. Þegar ég var að pæla í þessu þá fékk ég þær upplýsingar að þetta væri ribon kapallinn sem væri ónýtur eða hefði losnað. Pældi aldrei neitt meira í þessu þar sem hún var orðin úrelt.