Síða 1 af 1
Fartölva, hvernig ?
Sent: Sun 27. Apr 2008 16:57
af raRaRa
Ég er að íhuga að kaupa annaðhvort Acer eða Toshiba fartölvu, er ekki 100% viss hverja ég á að velja. bt.is selur ágætar Toshiba vélar á 119.000- t.d.
http://www.bt.is/Tolvubunadur/Tolvur/Fa ... E-17U023N5 en hún er 17" ! Ég væri til í mjög svipaða tölvu sem væri 15" og með ATi eða Radeon skjákorti. Hún á að geta höndlað tölvuleiki eins og Half-Life 2 og þægilegt að forrita í.
Hafiði góðar hugmyndir að fartölvu sem hentar mér? Verður a.m.k. að vera ATi eða nVidia skjákort, þá helst ekki HD2300.
Takk fyrir, í von um skemmtileg og fræðileg svör!
Re: Fartölva, hvernig ?
Sent: Sun 27. Apr 2008 17:59
af TechHead
Re: Fartölva, hvernig ?
Sent: Sun 27. Apr 2008 18:06
af raRaRa
Takk fyrir fljótt svar, TechHead.
Þetta hljómar ágætlega, miðað við verð. Átt þú sjálfur svona vél? Ef svo er, hvernig hefur hún reynst þér? Þá væri gaman að vita rafhlöðu endingu frá aðila sem hefur notað tölvuna, hvernig hún er að höndla nýjustu tölvuleiki og hvort tolvutækni gefi manni kost á XP í stað Vista?
Takk fyrir.
(BÆTT VIÐ)
http://www.tolvulistinn.is/vara/3874Afhverju ekki kaupa þessa frekar og fá 10x betri tölvu fyrir 10þús kr meira?

Re: Fartölva, hvernig ?
Sent: Sun 27. Apr 2008 21:29
af Selurinn
Vegna þess að Acer tölvan er svo ljót.....
Re: Fartölva, hvernig ?
Sent: Sun 27. Apr 2008 21:42
af zedro
raRaRa skrifaði:Afhverju ekki kaupa þessa frekar og fá 10x betri tölvu fyrir 10þús kr meira?

Held að orðið Tölvulistinn segir allt sem segja þarf. Maður verslar einfaldlega ekki tölvuhluti frá BT eða Tölvulistanum.
Ef eitthvað ábyrgðarmál kemur upp hjá þér með vél frá þessum stöðum skal ég lofa þér að þér verður svo tröllriðið að hálfu væri hellingur.
Þú vilt frekar versla við tölvubúð einsog Kísildal eða Tölvuvirkni ss. búð sem sérhæfir sig í tölvubúnaðir og með alvöru verkstæði.
Hérna er úrvalið í dalnum:
Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði:
Packard Bell MH-35-U-062D- T2330, 4GB minni, 160GB diskur, DVD-RW, Mirage M672, Vista Premium
kr. 99.900
Packard Bell Easynote MB89-P-022- T5750, 2GB minni, 250GB diskur, DVD-RW, 8600GT, Draft-N
kr. 139.900
Packard Bell MB87-P-002- T7500, 3GB minni, 200GB diskur, DVD-RW, 8600MGT, Vista Home Premium
kr. 149.900
Re: Fartölva, hvernig ?
Sent: Sun 27. Apr 2008 22:13
af raRaRa
Ég hef held ég ákveðið tölvu, væri gaman að sjá ykkar athugasemdir við henni:
http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=13787Acer 5920G - Santa Rosa
Fartölva - Acer Aspire 5920G fartölva - 302G16N
Ódýr, góður örgjörvi, chipset & skjákort! Mér persónulega finnst þessi Acer vél vera mjög falleg. Gott spec/price ratio. Ég mun halda við hana nema ég fái rosa slæmt comment um hana sem er trúverðugt

Re: Fartölva, hvernig ?
Sent: Mán 28. Apr 2008 08:36
af TechHead
Ef Acer tölvan bilar þá máttu búast við að bíða eftir henni í rúmlega mánuð í ábyrgðarviðgerð.
Bara það er nóg til að ég forðist Acer eins og heitan eldinn...
Re: Fartölva, hvernig ?
Sent: Mán 28. Apr 2008 23:43
af raRaRa
Ég komst að því í dag að þessi fartölva sem ég var að íhuga kaupa hjá Tölvutek fæst ekki hjá þeim, þeir voru bara með eina tölvu af týpunni 5920G sem var: Acer Aspire 5920G fartölva - 5A4G25BN - 149.900 - kr, þó svo þeir höfðu draumavél mína á verðlista sínum

Vitiði um aðrar verslun sem selur Acer Aspire 5920G fartölva - 302G16N ? Það væri frábært ef svo væri : -)
Takk fyrir.
Re: Fartölva, hvernig ?
Sent: Þri 29. Apr 2008 09:31
af Dazy crazy
Re: Fartölva, hvernig ?
Sent: Þri 29. Apr 2008 09:38
af mind
Eftir því sem ég best veit þá er þetta svona.
Tölvulistinn er með stærsta úrvalið af Acer.
Att er víst líka með Acer fartölvur og hefur verið með lengi.
Tölvutek tekur inn örfá model og auglýsa á móti tölvulistanum.
B.T. tekur inn nokkrar vélar líka til að auglýsa.
Vandamálið sem er hér til staðar er líklega að þú virðist vera leita af aðeins eldra módeli af fartölvu og Acer eru alltaf að koma með ný módel.
Því myndi ég telja líklegast að ATT eða Tölvulistinn ætti þetta módel sem þú ert að leita af EÐA nýja módelið af þeirri tölvu.
Ég held það geti ekki sakað að hringja í þá bara og spyrja.
302G16N er lýsandi módelsnúmer (segir til um örgjörva, minni, harðan disk o.s.f.) svo að þær vélar sem eru með líku númeri ættu að koma til greina.