Síða 1 af 1
Hjálp !! Fartölvuvandamál
Sent: Sun 27. Apr 2008 02:03
af nansy
Er með Dell fartölvu... og þegar ég kveiki á henni þá kemur windows merkið og það sem kemur í ræsingunni og svo eftir það þá er skjárinn bara svartur og ég get ekkert gert.
Einhver sem kannast við þetta og veit hvað gæti verið að ???
Re: Hjálp !! Fartölvuvandamál
Sent: Sun 27. Apr 2008 02:18
af Gets
Ekki veit ég hvað er að, en prófaðu að tengja aukaskjá við hana og ræsa hana svo.
Re: Hjálp !! Fartölvuvandamál
Sent: Þri 29. Apr 2008 17:25
af DoofuZ
Prófaðu að kveikja á tölvunni og byrjaðu að ýta á F8 á fullu rétt áður en Windows fer að keyra sig upp. Þá kemur listi yfir ýmsa valkosti við keyrslu á Windows svosem Safe Mode og þess háttar en það getur einmitt verið mjög sniðugt að kíkja á Safe Mode. Ef það kemur alveg eitthvað á skjáinn í Safe Mode þá er mjög líklega bara stillt á einhverja upplausn sem skjárinn styður ekki en þú getur lagað það með því að gera F8 dæmið aftur og velja VGA Mode. Þegar Windows er búið að ræsast upp í VGA Mode þá ferðu bara í display properties og velur upplausn sem skjárinn styður og endurræsir svo tölvuna. Þá ætti þetta vonandi að lagast
