Síða 1 af 1

Vesen á HP nx9105

Sent: Fös 29. Feb 2008 16:47
af Pink-Shiznit
Þegar ég reyni að starta henni, þá koma 3 smellir :s og fer ekkert lengra, en er samt í gangi. Næ stundum að komast í windows þá kemur blár skjár og hún sýnir bara svart:s Er þetta diskurinn eða er hún jafnvel búin að bræða úr sér?

Sent: Fös 29. Feb 2008 17:01
af Dazy crazy
Lýsir sér eins og þú hafir yfirklukkað hana, sem er ekki líklegt samt. Örugglega hardware failure.

Sent: Fös 29. Feb 2008 17:16
af Pink-Shiznit
dagur90 skrifaði:Lýsir sér eins og þú hafir yfirklukkað hana, sem er ekki líklegt samt. Örugglega hardware failure.


Yfirklukkaði hana ekki, og ég er nokkuð viss um að hér sé um hardware failure að ræða. En hvaða hardware :S:S Þessi tölva hefur alltaf verið í gangi í rumi, og með takmarkað loft, þannig að ofhitnun er möguleiki og hún er ALLTAF í gangi

Sent: Sun 02. Mar 2008 04:02
af Pink-Shiznit
Veit þetta einhver :(

Sent: Sun 02. Mar 2008 11:00
af Dazy crazy
Smellirnir gætu verið í harða diskinum.

Sent: Sun 02. Mar 2008 11:48
af eigill3000
Gerðist eitthvað svona við mig eða "harwarefailure" ég þurfti að formta :(

Sent: Sun 02. Mar 2008 13:07
af OverClocker
Bendir allt til þess að harði diskurinn sé að bila.

Sent: Sun 02. Mar 2008 14:06
af CendenZ
dagur90 skrifaði:Lýsir sér eins og þú hafir yfirklukkað hana, sem er ekki líklegt samt. Örugglega hardware failure.


Hárrétt. Svona á að gera þetta.

Alhæfingar útí bláinn.

Vel gert, BT verðlaun ársins.

Sent: Sun 02. Mar 2008 14:17
af IL2
Getur tekið harða diskin úr og prufað hann, svona til að útiloka hann

Sent: Sun 02. Mar 2008 18:01
af Pink-Shiznit
Heyrðu, my bad, smellirnir voru í drifinu :p Þannig að útilokum það hljóð...Ég er búinn að tékka skjákortið, það virkar allavega..hvað fleira?

Sent: Þri 11. Mar 2008 16:48
af Pink-Shiznit
Einhver? :(