Ný fartölva


Höfundur
Óskar Póskar
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Mið 05. Júl 2006 16:02
Reputation: 0
Staðsetning: rvk
Staða: Ótengdur

Ný fartölva

Pósturaf Óskar Póskar » Mán 14. Maí 2007 23:26

Jæja, góða kvöldið hér.

Ég er að vona að konan lengi í ólinni fljótlega og leyfi mér að versla mér nýjan lappa.

Ég vil fyrirferðarlitla tölvu, nenni ekki að druslast með flykki í skólann.
Ég er ekki leikjanörd en vil að tölvan höndli margt margt í einu, þ.m.t. grafíska vinnslu.
Þó skjárinn verði líklegast bara 12,1", þá vil ég samt hafa góða upplausn.

Ég var orðinn heitur fyrir Thinkpad X60, en þá sá ég að það er ekki touchpad á henni og málið datt niður dautt.

Ég á núna Thinkpad tölvu, sem er farin að lýjast eilítið, en hefur staðið sig mjög vel.

Einhverjar uppástungur?
Verðið er ekki vandamál (þ.e. ef konan leyfir mér :wink: )

þakkir
Óskar




Tappi
has spoken...
Póstar: 174
Skráði sig: Fim 22. Jún 2006 11:02
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Tappi » Þri 15. Maí 2007 09:25

Ef þú ert að leita að fartölvu sem er létt og villt samt ekki að fórna krafti og peningar ekki vandamál þá er
sony sz premium klárlega málið að mínu mati.

Hún er með 13.3" widescreen skjá og er gerð úr carbon fiber sem gerir hana ofurlétta eða aðeins 1.68kg. Vandamálið er að ég hef ekki séð hana selda hér á íslandi nema ég sá standard týpuna í computer.is og hún var frekar dýr. Ég keypti mér mína erlendis. Standard týpan er ekki eins létt en munar samt ekki miklu held hún sé tæplega 1.9kg.
Mynd




Höfundur
Óskar Póskar
Nýliði
Póstar: 8
Skráði sig: Mið 05. Júl 2006 16:02
Reputation: 0
Staðsetning: rvk
Staða: Ótengdur

Pósturaf Óskar Póskar » Fös 18. Maí 2007 13:49

Þessi kemur sterk inn. :)

Takk fyrir ábendinguna.



Einhverjir með fleiri tillögur?




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf dadik » Lau 19. Maí 2007 14:13

Thinkpad all the way ...

Fáðu þér bara T60, held það sé eitt það besta sem er í boði hérna heima í dag.

-- dk

ps. þetta er skrifað á Thinpad A30 model 2000. Minnið er komið í 1GB. Skipt var um disk fyrir rúmum 2 árum. Að öðru leyti hefur þessi elska ekki klikkað ;)