Lenovo fartölvur


Höfundur
Sprelli
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Þri 14. Feb 2006 12:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Lenovo fartölvur

Pósturaf Sprelli » Mið 25. Apr 2007 15:40

Hvernig eru þessar Lenovo tölvur? Eru þær að standa sig?

Hvort ætli sé betri fyrir peninginn, C200 eða N100?




END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Lenovo fartölvur

Pósturaf END » Mið 25. Apr 2007 16:22

Sprelli skrifaði:Hvernig eru þessar Lenovo tölvur? Eru þær að standa sig?

Hvort ætli sé betri fyrir peninginn, C200 eða N100?


Ég held þú fáir mest fyrir peninginn með Macbook ;)

Miðgerð þeirrar tölvu kostar nú 140 þús. kr. ef þú ert í Námunni hjá Landsbankanum geturðu auk þess fengið 10% afslátt sem kemur verðinu niður í u.þ.b. 127 þús. kr. Ég held þú gerir ekki betra kaup. Nema kannski með því að kaupa ódýrustu gerð Macbook tölvunnar og uppfæra sjálfur minnið í 2GB og harða diskinn í 160GB. Tölvan með slíkri uppfærslu ætti þá að kosta u.þ.b. 133 þús kr.

Annars finnst mér Lenovo V100 mest spennandi af þeim tölvum. Ég myndi setja Portability ofar en annað við kaup á fartölvu.




Höfundur
Sprelli
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Þri 14. Feb 2006 12:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Sprelli » Fös 27. Apr 2007 13:46

Mig langar ekkert sérstaklega í Maca, því miður.




TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf TechHead » Fös 27. Apr 2007 14:27

Lenevo tölvurnar eru mjög vandaðar og góðar vélar.

Klikkar ekki með N100 vélina á rúmar 144þús. Flottir speccar og góð vara.




Xyron
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Xyron » Fös 27. Apr 2007 18:31

toshiba er líka mjög vandaðar tölvur.. byggðar nánast frá a til ö af þeim..

eru víst með lægstu doa tíðni af öllum tölvum í heiminum í dag




END
has spoken...
Póstar: 161
Skráði sig: Lau 28. Jún 2003 01:52
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Pósturaf END » Fös 27. Apr 2007 19:36

Xyron skrifaði:toshiba..[]..eru víst með lægstu doa tíðni af öllum tölvum í heiminum í dag


Heimildir? Ekki það að ég dragi orð þín í efa en það væri gaman að vita hvaða staðreyndir liggja að baki þessarar fullyrðingar.



Skjámynd

Revenant
</Snillingur>
Póstar: 1031
Skráði sig: Fim 24. Jún 2004 12:36
Reputation: 132
Staða: Tengdur

Pósturaf Revenant » Fös 27. Apr 2007 20:05

Lenovo (áður IBM) fartölvur eru æðislegar. Hinsvegar er Lenovo meira að stíla inn á fyrirtækjamarkaðinn og eru því ekki alltaf með "cutting edge" vélbúnað. Þeir stíla meira inn á áreiðanleika og batterísendingu.



Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Pósturaf ManiO » Fös 27. Apr 2007 20:38

En þegar maður kaupir beint af fyrirtæki sem er með heilan helling af svona tölvum á lager skiptir DOA ekki miklu máli, tefst kannski um einn dag. Væri miklu verr ef þú lendir í sérpantaðari vél. Bilanatíðni er það sem að fólk þarf að hafa áhyggjur af með fartölvur, ekki DOA.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


Xyron
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Xyron » Fös 27. Apr 2007 21:19

END skrifaði:
Xyron skrifaði:toshiba..[]..eru víst með lægstu doa tíðni af öllum tölvum í heiminum í dag


Heimildir? Ekki það að ég dragi orð þín í efa en það væri gaman að vita hvaða staðreyndir liggja að baki þessarar fullyrðingar.


fór á fyrirlestur hjá toshiba kynningarfulltrúa fyrir nokkrum mánuðum .. efaðist bara um að hann væri að ljúga þessu, seldu mig alveg þegar hann var að renna í gegnum framleiðsluferlið hjá þeim.. eru að framleiða mestan hlutan af tölvunum alveg sjáflir og fá þannig mikið betri yfirstjórn yfir framleiðsluferlinu

hefði nú samt haldið að það væri nú einhver tenging milli doa og billatíðni.. hlítur að segja eitthvað um það :?:




dadik
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf dadik » Sun 29. Apr 2007 23:47

PC Magazine gerði könnun á þessu:

2002 könnunin er hérna: http://www.pcworld.com/article/id,112915-page,9/article.html#

Tékkið á pfd skjalinu sem tekur þetta saman.

2003 könnunin er hérna: http://www.pcworld.com/article/id,112915-page,9/article.html#

Apple, IBM og Toshiba eru að skora best 2002
Dell, Gateway, IBM og Toshiba eru best 2003

Miðað við að Lenovo keypti framleiðslulínuna af IBM má búast við að þetta séu ágætis vélar. Reyndar er Lenovo consumer merkið meðan ThinkPad eru pro vélarnar. Ég mæli frekar með að þú takir pro vél, þær endast einfaldlega betur.

Ég er td. með ThinkPad A30 sem ég nota fyrir sörf og tónlist. Þetta er 2000 módel sem ég fékk í hendurnar 2001. Hefur ekki klikkað allan þennan tíma enda í svokallaðri workstation línu. Sama gildir um T-línuna, þetta reyndust ákaflega traustar vélar.

Eins hefur Toshiba verið með feykilega gott hardware gegnum tíðina, get hiklaust mælt með pro línunum frá þeim.

Það sem þú þarft að passa þig á er að kaupa ekki eh. consumer dót - sama hver framleiðandinn er. Þetta er oft ódýrustu vélarnar, en í þessum tilfellum færðu það sem þú borgar fyrir. Dæmi um þetta eru R40 og R50 línan af ThinkPad. Þetta voru ódýrar vélar sem var mokað út til námsmanna og fyrirtækja fyrir nokkrum árum. Þær þoldu enganvegin það álag sem fylgir professional notkun og hrundu eina af öðrum. Amk var þetta reynslan frá mínu firma, mig minnir að tölvudeildin sé með bunka af svona hræjum í kjallaranum.




wICE_man
Kerfisstjóri
Póstar: 1293
Skráði sig: Fös 20. Feb 2004 00:25
Reputation: 35
Staðsetning: Í kísildalnum
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf wICE_man » Mán 30. Apr 2007 12:57

Spurning um að nota nýrri kannanir, margt getur breyst á nokkrum árum:

Árið 2004:
http://www.pcworld.com/zoom?id=118514&page=5&zoomIdx=1

Árið 2005:
http://www.pcworld.com/zoom?id=123409&page=9&zoomIdx=1

Þarna hefur t.d. Toshiba hrapað niður listann (enda eru BT að selja þær :twisted: )

Emachines er líka skólabókadæmi um hvað gerist ef menn ætla að spara of mikið í rekstri, þeir eru langbestir 2004 en hrapa niður í næst neðsta sæti 2005.

Áhugaverður mælikvarði þarna er "satisfaction with reliability" sem getur verið mjög tvíeggjaður mælikvarði og nokkuð sem mér sjálfum dytti ekki í hug að hafa með í dæminu þar sem slíkt opnar fyrir alskonar duttlunga og fanboy-isma.


Tölvuverslunin Kísildalur, staðurinn þar sem nördin versla :)
...og btw þá er ég innvígður og innmúraður í Kísildal


Xyron
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Xyron » Mán 30. Apr 2007 14:03

kemur mér á óvart að sjá acer svona hátt á þessum lista, hafa alltaf virkað frekar low budget á mig?

hélt að acer keyptu íhluti í vélarnar sínar frá ódýrasta söluaðila..



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6423
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 284
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Mán 30. Apr 2007 15:29

já, tildæmis eins og frá Intel, AMD, ATi, nVidia, Marvell og sama helvítis draslið og er verið að selja fyrir smápening útum allt :twisted: :wink:


"Give what you can, take what you need."


dadik
Tölvutryllir
Póstar: 614
Skráði sig: Lau 14. Sep 2002 11:21
Reputation: 103
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf dadik » Þri 01. Maí 2007 19:04

wICE_man skrifaði:Spurning um að nota nýrri kannanir, margt getur breyst á nokkrum árum:

Árið 2004:
http://www.pcworld.com/zoom?id=118514&page=5&zoomIdx=1

Árið 2005:
http://www.pcworld.com/zoom?id=123409&page=9&zoomIdx=1

Þarna hefur t.d. Toshiba hrapað niður listann (enda eru BT að selja þær :twisted: )

Emachines er líka skólabókadæmi um hvað gerist ef menn ætla að spara of mikið í rekstri, þeir eru langbestir 2004 en hrapa niður í næst neðsta sæti 2005.

Áhugaverður mælikvarði þarna er "satisfaction with reliability" sem getur verið mjög tvíeggjaður mælikvarði og nokkuð sem mér sjálfum dytti ekki í hug að hafa með í dæminu þar sem slíkt opnar fyrir alskonar duttlunga og fanboy-isma.


Gott að finna þessar nýju kannanir. Ég hélt reyndar að þeir hefðu hætt þessum könnunum, en svo er greinilega ekki.

Ég er reyndar að spá í hvað kom fyrir hjá Toshiba. Þeir voru lengi vel með mjög fínar vélar. Þóttu reyndar dýrir en voru mjög áreiðanlegir. Toshiba hefur fínt orðspor þegar kemur að sérhæfðum tölvubúnaði, iðntölvur og fleira dót sem þarf að keyra í leiðinlegu umhverfi (hiti, ryk, hristingur etc). Spurning hvort þetta sé consumer línan sé að draga þá niður. Eins og þú segir þá er BT að selja vélar frá þeim og yfirleitt frekar ódýrt .. en BT er jú BT :8)

Ég er reyndar sammála þér með "Satisfaction with reliability" dæmið. Þetta er gríðarlega slakur mælikvarði sem mælir í raun ekkert annað en væntingar kaupandans til tölvunnar. Ef þú kaupir ódýra tölvu og býst við að hún bili geturðu samt verið með hátt SWR þar sem þú bjóst jú við þessu. Einhverntíman sá ég könnun þar sem tekin var statistik á borð við fjölda og alvarleika bilana - sem er jú mun meira virði imho.




Xyron
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 389
Skráði sig: Sun 09. Okt 2005 23:36
Reputation: 0
Staðsetning: 127.0.0.1
Staða: Ótengdur

Pósturaf Xyron » Þri 01. Maí 2007 20:53

gnarr skrifaði:já, tildæmis eins og frá Intel, AMD, ATi, nVidia, Marvell og sama helvítis draslið og er verið að selja fyrir smápening útum allt :twisted: :wink:


meira þá að hugsa um þétta á móðurborð og annað slíkt :?




Höfundur
Sprelli
Græningi
Póstar: 35
Skráði sig: Þri 14. Feb 2006 12:40
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Sprelli » Mán 21. Maí 2007 18:03

En eru þessar tölvur með sér partition á diskinum fyrir sinn eigin búnað. Hvernig er það?




Kaffi
Nýliði
Póstar: 5
Skráði sig: Mið 18. Júl 2007 16:24
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Kaffi » Lau 21. Júl 2007 19:48

þegar þú kaupir þér fartölvu þá þarftu að hugsa um áræðanleika söluaðilans. Þú villt ekki kaupa fartölvu af búð sem er farin á hausinn/búin að skipta um kt. áður en ábyrgðin er búin.

Af sömu ástæðu skaltu vera alveg viss um að þú fáir pottþétta þjónustu þegar fartölvan bilar. En það er einmitt málið, fartölvur eru með afl á við ágætis turn en komast fyrir í hálfum cheeiros pakka og því eru þær líklegri en venjulegar tölvur til að bila. Maður þarf sem sagt að gera ráð fyrir því að fartölvur bili, séu þær á annað borð notaðar.

Ég á 2ja ára ThinkPad T42 sem hefur hlotið sinn skerf af óhepni, en ég hef bara farið með hana á verkstæðið hjá nýherja og fengið til baka á mjög ásættanlegum tíma, ekkert vesen með neinar nótur, ekkert verið að saka mann um illa meðferð, bara lagað og brosað.

Auðvitað þarf maður að borga smá auka fyrir að vera alveg sjor á því að vera með þessa þjónustu. Það kostar minna að kaupa tövlu hjá BT en Nýheja, en það er ekki spurning á hvorum staðnum ég vill versla.

P.S. ég heyrði einn lýsa fartölvukaupum nokkuð vel: "Það skiptir engu máli hvernig tölvu þú kaupir þér, bara að hún heiti IBM eða Dell"