Vantar hjálp


Höfundur
niCky-
FanBoy
Póstar: 707
Skráði sig: Fim 21. Sep 2006 10:50
Reputation: 3
Staða: Ótengdur

Vantar hjálp

Pósturaf niCky- » Mán 05. Feb 2007 14:55

svona er mál með vexti að ég er með HP fartölvu með 1.8GHz Intel Pentium processor en tölvan virðist vera að vinna bara á 600MHz þótt hún sé í hleðslu :/ ég veit að sumar fartölvur eru með svona power optional forrit eitthver sem hægt er að stilla performance og annað, en ég er bara ekki með neitt thannig forrit því að ég formattaði og veit ekki um diskana :/ en check it http://pic18.picturetrail.com/VOL865/39 ... 211250.jpg Þætti vænt um ef eitthver gæti hjálpað mér með þetta, takk fyrir. :roll:



Skjámynd

arnarj
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 7
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf arnarj » Mán 05. Feb 2007 16:36

þetta er bios stilling, þ.a.l. helst þetta þó vélin sé straujuð. Þarft að leita eftir "best performance" í biosnum.



Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Mán 05. Feb 2007 16:51

Rangt.

Þetta er fartölva með mobile örgjörva sem klukkar sig sjálfkrafa niður ef hún er ekki í neinni vinnslu. Um leið og þú settir hana í einhverja vinnslu, þá rýkur þetta uppí 1.8Ghz.

Hún eyðir minna batterýi svona og hitnar minna. Allir vinna.



Skjámynd

arnarj
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 7
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf arnarj » Mán 05. Feb 2007 17:41

jeminn eini gaur. þetta er ekki rangt. Ég er með lappa og þetta er fítus til að lengja rafhlöðuendinguna. Þú getur SLÖKKT á þessum fítus ef þú kýst í Biosnum.

reyndu að kanna hlutina áður en þú kemur með svona fullyrðingar.



Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Mán 05. Feb 2007 21:03

Heyrðu, bara af öllum þeim fartölvu BIOSum sem ég hef farið í - DELL, HP, TOSHIBA og IBM - þá hef ég aldrei rekst á svona. Hinsvegar fylgir oft með frá framleiðenda tól til að stilla þetta, hvort sem að það er Speedstep eða PowerNow! eða hvað sem þetta heitir allt.

Það er alger óþarfi að vera að gera það úr BIOS (ef það er á annað borð hægt - ég hef aldrei rekist á það í fartölvu) þegar þú getur gert það í stýrikerfinu.

Ég notaði SpeedSwitchXP þegar ég var á AMD laptop hérna fyrir ári eða tveim til að stjórna klukkuhraðanum á örgjörvanum sjálfur.

Mæli með að þú reynir bara sjálfur að kanna hlutina áður en að þú kemur með svona fullyrðingar um að aðrir eiga að kanna hlutina áður en að þeir koma með fullyrðingar. Speedstep/Powernow/Cpufreq er til svo að menn geta stjórna klukkuhraðanum úr stýrikerfinu og að þú getir gert það stiglaust.



Skjámynd

arnarj
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 7
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf arnarj » Mán 05. Feb 2007 21:59

Jæja kallinn, skoðaðu bara þetta:

http://www.intel.com/support/processors ... 007979.htm
http://forums.whirlpool.net.au/forum-re ... 52598.html

Sjálfur er ég með IBM lappa, ég get slökkt á speedstep í bios!

Get t.d. valið á milli t.d.:
maximum performance
maximum battery life

Þannig að þú skalt bara halda áfram að segja að ég hafi rangt fyrir mér ef þér líður betur við það



Skjámynd

Voffinn
Vaktari
Póstar: 2249
Skráði sig: Sun 22. Des 2002 17:41
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf Voffinn » Mán 05. Feb 2007 22:02

Ég er nú bara farinn að halda að við séum báðir að hafa rétt fyrir okkur - að við séum bara að misskilja hvorn annan. :lol:



Skjámynd

arnarj
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 28. Okt 2002 22:40
Reputation: 7
Staðsetning: 113 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf arnarj » Mán 05. Feb 2007 22:06

Þá er sá misskilningur einungis hjá þér.

Get alveg tekið undir það að windows lausnin þín geti líka virkað og það er fínt hjá þér að benda á það.

Breytir ekki þeirri staðreynd að ég hafði EKKI rangt fyrir mér þó svo ég hafi ekki bent á það sama og þú þekktir.