Síða 1 af 1
Jæja var að panta nýja tölvu hvað finnst ykkur?
Sent: Þri 25. Júl 2006 20:54
af fr0sty
Jæja var að panta mér Dell inspiron 9400 17" lappa. Í henni er:
Intel Core duo 2500, 2gb ddr2, 120gb harðurdiskur og Nvidia 7900GS.
Á einhver hérna svona fartölvu og gæti sagt mér frá reynslu sinni með henni?
Annars held ég að þetta verði massa tölva í allskonar vinnslu.
Sent: Þri 25. Júl 2006 21:14
af gumol
Fyrst þú ert búinn að panta hana þá bara til hamingju, vonandi verður hún fín.
Nvidia skjákort, Intel dual core og 17' skjár lítur vel út. Þú kemst sjálfsagt að því hvort svo sé ekki góð

Sent: Þri 25. Júl 2006 23:04
af CraZy
kannski ekki best í skólan (17") en ætti að vera fær í flestan sjó í annað
Sent: Mið 26. Júl 2006 00:10
af fr0sty
jamms ég efast um að ég nenni að fara með hana í skólann nema ég veit að ég á að skrifa ritgerð eða eitthvað þannig. Hefur einhver prófað/átt svona Dell fartölvu? Ég finn engar umsagnir fyrir hana á netinu...allavega ekki nákvælmega þessa tölvu.
Sent: Mið 26. Júl 2006 10:12
af wICE_man
Bara til að hræða þig smá:
http://www.theinquirer.net/default.aspx?article=32550
En annars óska ég þér til hamingju með þennan borðtölvu staðgengil.
Sent: Mið 26. Júl 2006 13:50
af fr0sty
haha "avoid using the laptop in you lap" haha skiljanlegt.