Síða 1 af 1
Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Lau 15. Nóv 2025 13:22
af falcon1
Nú er svo komið að ég get ekki lengur tengt símann (Samsung A70) við tölvuna (PC), þ.e. tölvan finnur ekki símann lengur, og ég er oft í vandræðum með að hlaða símann - sérstaklega þegar hann er með mjög lítið batterý - ég fæ upp á skjáinn að hann sé að hlaðast en oft þá er það bara vitleysa. Þannig að ég þarf að fylgjast vel með honum til að byrja með hvort hann sé raunverulega að hlaðast.
Ég er helst að nota OneNote, Google Calendar/Drive/photos, myndavélina, og svo taktmælir, fyrir utan náttúrulega vafra og facebook scroll.

Annað nota ég mjög lítið.
Þannig að ég er að leita að síma sem er með nokkuð góða myndavél/myndbönd (allavega mun betri en A70) en sem kostar ekki augað úr.

Hverju mynduð þið mæla með?
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Lau 15. Nóv 2025 13:36
af Viggi
Ef 256 gb er nóg fyrir þig þá eru oneplus símarnir frábærir
13R er á tilboði hér
https://emobi.is/vorur/snjallsimar/onep ... -5g-256gb/Þessi búð er með gott rating. borgar svo nokkra þúsara þegar hann kemur
https://www.aliexpress.com/item/1005010 ... in_prod%3A
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Lau 15. Nóv 2025 15:07
af kristjanorrihugason
falcon1 skrifaði:Nú er svo komið að ég get ekki lengur tengt símann (Samsung A70) við tölvuna (PC), þ.e. tölvan finnur ekki símann lengur, og ég er oft í vandræðum með að hlaða símann - sérstaklega þegar hann er með mjög lítið batterý - ég fæ upp á skjáinn að hann sé að hlaðast en oft þá er það bara vitleysa. Þannig að ég þarf að fylgjast vel með honum til að byrja með hvort hann sé raunverulega að hlaðast.
Ég er helst að nota OneNote, Google Calendar/Drive/photos, myndavélina, og svo taktmælir, fyrir utan náttúrulega vafra og facebook scroll.

Annað nota ég mjög lítið.
Þannig að ég er að leita að síma sem er með nokkuð góða myndavél/myndbönd (allavega mun betri en A70) en sem kostar ekki augað úr.

Hverju mynduð þið mæla með?
15T er mjög góður sími, sá hann á afslætti á 11.11 hjá Mi Búðinni, gæti verið að hann verði aftur á afslætti fyrir Black Friday.
https://mibudin.is/vara/xiaomi-15t-leica/
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Lau 15. Nóv 2025 16:30
af Sultukrukka
Myndi byrja á því að hreinsa úr usb c hleðsluportinu. Oft safnast ló fyrir og það lýsir sér nokkurnveginn svona, erfitt að hlaða og lélegt samband í snúrum. Ættir að getað brúkað hann eitthvað áfram.
https://www.reddit.com/r/iphone/comments/atxrcz/1_year_worth_of_lint_from_my_pant_pockets/
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Lau 15. Nóv 2025 18:49
af peer2peer
viewtopic.php?f=67&t=100772Eða taka Google Pixel 9 síma sem ég er einnig með

(Langar að uppfæra)
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Mán 17. Nóv 2025 01:43
af Dizzydwarf
Ég myndi hugsa út í VoLTE kerfið ekki allir símar verða með stuðning á Íslandi og verslanir eru ennþá að selja síma sem munu ekki styðja kerfin
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Þri 18. Nóv 2025 00:15
af falcon1
Er þetta VoLTE eitthvað sem er komið?
Ég annars virðist hafa náð að þrífa portið nógu vel þannig að hann virðist allavega taka hleðslu betur, á eftir að prófa að tengja við PC.
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Þri 18. Nóv 2025 15:39
af Dizzydwarf
falcon1 skrifaði:Er þetta VoLTE eitthvað sem er komið?
Ég annars virðist hafa náð að þrífa portið nógu vel þannig að hann virðist allavega taka hleðslu betur, á eftir að prófa að tengja við PC.
þetta klárast núna í Desember, flestir 2g,3g eru farnir út á landi, höfuðbogin og nágreni eftir.
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Mið 19. Nóv 2025 19:59
af Mazi!
Hvað má síminn kosta? ég hef verið mjög ánægður með Xiaomi, færð mikið fyrir peninginn í þeim.
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Lau 03. Jan 2026 22:23
af falcon1
Hvaða Xiaomi ertu að nota? Hef verið að pæla í hvort að ég eigi að fara í Xiaomi þar sem myndavélafítusinn virðist vera betri en í iPhone. Hvað segið þið, er það rétt?
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Mán 05. Jan 2026 00:21
af einarhr
falcon1 skrifaði:Hvaða Xiaomi ertu að nota? Hef verið að pæla í hvort að ég eigi að fara í Xiaomi þar sem myndavélafítusinn virðist vera betri en í iPhone. Hvað segið þið, er það rétt?
Er búin að eiga Poco X3 í sennilega 4 ár, hann er með frábært batterí og hleðslu ásamt mjög góðri myndavél.
Mæli hiklaust með Xiaomi Poco
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Þri 06. Jan 2026 01:46
af kizi86
ég keypti nýverið Redmi Note 14 Pro+, 12GB ram+ 512GB storage, 200Mp myndavél, er mjöööög sáttur með þennan síma
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Mið 07. Jan 2026 21:10
af Dropi
Hef átt Xiaomi Mi 8, 13 Pro og núna 15 Ultra. Báðir gömlu símarnir svínvirka enn í notkun hjá fjölskyldumeðlimum. Mæli hiklaust með. 15 Ultra símann keypti ég útaf myndavélinni og hún hefur sko fengið að svitna.
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Fim 08. Jan 2026 14:49
af falcon1
Ég sé að Xiaomi 15 ultra er bara með 4g og er ekki með eSim. Er það mikill galli?
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Fim 08. Jan 2026 15:25
af rostungurinn77
falcon1 skrifaði:Ég sé að Xiaomi 15 ultra er bara með 4g og er ekki með eSim. Er það mikill galli?
Væntanlega það sama og núverandi sími er með?
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Fim 08. Jan 2026 16:02
af kristjanorrihugason
falcon1 skrifaði:Ég sé að Xiaomi 15 ultra er bara með 4g og er ekki með eSim. Er það mikill galli?
Evrópska útgáfan af 15 Ultra er með 5G og styður eSim, ímynda mér að það ætti að virka fínt hjá símafyrirtækjum hér.
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Fim 08. Jan 2026 20:39
af falcon1
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Fim 08. Jan 2026 21:05
af Diddmaster
Helstu eiginleikar
Dual SIM með eSIM stuðningi. Stendur í lýsinguni
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Fim 08. Jan 2026 21:15
af falcon1
Skrítið að það skuli ekki vera þá listað í speccunum (eiginleikunum). Hvort á að taka mark á?
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Fim 08. Jan 2026 21:20
af Diddmaster
falcon1 skrifaði:Skrítið að það skuli ekki vera þá listað í speccunum (eiginleikunum). Hvort á að taka mark á?
Tekur mark á þessum
kristjanorrihugason skrifaði:falcon1 skrifaði:Ég sé að Xiaomi 15 ultra er bara með 4g og er ekki með eSim. Er það mikill galli?
Evrópska útgáfan af 15 Ultra er með 5G og styður eSim, ímynda mér að það ætti að virka fínt hjá símafyrirtækjum hér.
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Fim 08. Jan 2026 21:32
af falcon1
Hvernig er þetta HyperOS 2.0 stýrikerfi miðað við iOS?
Re: Kaupa nýjan síma - Vantar ráð
Sent: Fim 08. Jan 2026 22:58
af Diddmaster
falcon1 skrifaði:Hvernig er þetta HyperOS 2.0 stýrikerfi miðað við iOS?
Android