Sjálfur er ég búinn að vera með Samsung G-S6 í að verða tvö ár í vor og mig er farið að klæja í að skipta. Eina sem heillar mig þessa dagana af þessum klassíska markaði mun vera SGS7-Active, vatns-, höggheldur og 4000mah batterý hljóma nokkuð vel.
Hinsvegar hef ég mikið verið að skoða utan þessi stóru merki undanfarið og rakst á Gionee M2017 og það vaknaði svaka pervert í mér, þetta RISAbatterý, stærðin á geymslu, tveggja linsu myndavél og margt fleira finnst mér alveg svakalega spennandi. Verst er að ég finn hann hvergi nema hérna og mér sýnist flestir símar vera á nokkuð háu verði þarna.
Ég vonast til að geta skipt á næstu 5ish mánuðunum og er að skoða Gionee Marathon M5 og Allview P8 Energy svona til að prófa eitthvað utan þessa mainstream. Eitthverjir í svipuðum pælingum eða hvað sem er endilega skjótið ykkar skoðunum eða pælingum inn
