Hafst1D skrifaði:kizi86 skrifaði:Hafst1D skrifaði:Það er mikið af persónlegum gögnum sem ég væri alveg til í að fara að fá aftur.
Hafst1D skrifaði:Gunnarulfars skrifaði:Ég vona að þú hafir tekið það skýrt fram að það mætti ekki hreinsa gögn úr símanum þínum, fyrst þú átt einhver þarna inni sem þú þarft að eiga. Nánast skilyrðislaust er factory reesettað símana sem fara í viðgerð.
Já það er allt í góðu, er með fullt backup af öllu

hmmmm meikar ekki sens....
segir í upprunapósti að það sé mikið af gögnum sem vilt komast í, í símanum, en segir svo að ert með fullt backup af öllu??
en já að þú hafir fengið subpar android síma þegar settir fyrrum flaggskipssíma í viðgerð er bara bull og rugl og lögbrot, þeir EIGA samkvæmt LÖGUM að útvega þér SAMBÆRILEGT tæki meðan á viðgerð stendur.
Já var með fullt backup af öllu en hef ekkert að gera með backup ef ég er ekki með tæki til að setja það á, Apple Backupin virka þannig. Er ekki kunnugur um þessi lög samt...
En núna áðan fékk ég meldingu um að síminn væri klár, fór niður eftir og þeir sögðu bara nýtt tæki. Er núna kominn með splunkunýjan 6s... okei I guess

wicket skrifaði:kizi86 skrifaði:
hmmmm meikar ekki sens....
segir í upprunapósti að það sé mikið af gögnum sem vilt komast í, í símanum, en segir svo að ert með fullt backup af öllu??
en já að þú hafir fengið subpar android síma þegar settir fyrrum flaggskipssíma í viðgerð er bara bull og rugl og lögbrot, þeir EIGA samkvæmt LÖGUM að útvega þér SAMBÆRILEGT tæki meðan á viðgerð stendur.
Ég væri til í að vita skv. hvaða lögum þetta er? Hef ekki heyrt áður að þetta sé bundið í lög. Hver ákveður svo hvað sé sambærilegt miðað við þann búnað sem er í viðgerð.
var þarna að vitna í neytendakaupalögin
http://www.althingi.is/lagas/nuna/2003048.htmlnánartiltekið 3mgr 30gr téðra laga sem hljómar svo:
Ef úrbætur eða ný afhending seljanda hafa það í för með sér að neytandi getur ekki notað söluhlut í meira en eina viku getur neytandi krafist þess að fá sambærilegan hlut til umráða á kostnað seljanda. Þetta á þó aðeins við ef krafan telst sanngjörn með hliðsjón af þörfum neytandans og þeim kostnaði og óhagræði sem það hefur í för með sér fyrir seljanda.
og já, núna ertu kominn með nýtt tæki í hendurnar, og það þýðir að það sé aftur 2 ára ábyrgð á símanum
