Ertu að nota kortalesara til að lesa kortið eða stingurðu myndavélinni bara í samband?
Ég tók kortið úr vélinni og setti það í fartölvuna.
Hef lent í svipuðu en náði ekki að endurheimta myndirnar til baka.. Það er vesen og vinna að reyna að fá þær til baka.
Bömmer, mig er farið að gruna að ég muni heldur ekki endurheimta mínar það skrítna er hins vegar að forritin finna elstu myndirnar sem voru teknar þegar verið var að prófa vélina eða til að skýra þetta betur :
(1) Vélin prófuð með nokkrum myndum - þeim er eytt handvirkt
(2) fullt af myndum teknar - færðar yfir í tölvu og hún látin eyða þeim
(3) fleiri myndir teknar - sumum eytt handvirkt <-- hér formattaðist
Myndirnar úr nr 1 finnast alltaf í öllum skönnum en það er bara eins og hinar hafi gufað upp

er mögulegt að kortið hafi verið deep formattað ? þegar ég valdi að hætta við formattið þá tók ég ekki eftir að vélin væri að vinna eitthvað t.d. að formatta kortið (ef hún gerði það) myndirnar voru bara farnar
http://www.piriform.com/recuva
ég var mjög spenntur fyrir þessum kost því ég hef mikið notað hin 3 forritin frá piriform en því miður þá fann deep scan ekki neinar nýjar myndir
Hef bjargað af minniskorti en ekki útaf þessari ástæðu en ég notaði PowerDataRecovery.
kíki á þetta og læt ykkur vita
