Eruði búnir að prófa þetta? Hvernig finnst ykkur?
Persónulega hef ég íhugað að skipta um banka til að fá almenninlegan mobile heimabanka og því frekar líklegt að ég muni skipta yfir í isb

Swooper skrifaði:Ég nennti ekki að skipta um banka heldur, svo ég lét bara Íslandsbanka kaupa Byr til að redda málinu.
Danni V8 skrifaði:Ég var hjá Byr og er hjá Íslandsbanka núna en ég get ekki loggað mig inn í heimabankann minn með appinu og ekki heldur á heimabanka síðunni hjá Íslandsbanka. Ég verð að fara inná hb.byr.is til að tengjast mínum heimabanka.
Er samt búinn að senda þeim póst og byðja þá um að laga þetta
hfwf skrifaði:Hvernig væri nú að ARION færi að gera eitt svona app, nenni ekki að skipta um banka