Ég er að fara versla mér lappa og langar að fá smá álit á þeim tveim sem standa efst í huga.
Acer Aspire 7720G - http://www.tolvulistinn.is/vara/2294
Packard Bell Easynote - http://www.tolvutek.is/product_info.php ... s_id=13783
það er lítill sem enginn munur nema packardinn er 10k ódýrari.
Hvað hafið þið um þessar vélar að segja? afhverju ætti ég að velja Acer fram yfir Packard eða öfugt?
Fartölvukaup
Re: Fartölvukaup
Ég myndi taka Packard Bell vélina hún er með 2.5 Ghz örgjörfa með 6 mb flýtiminni á móti 2.2 Ghz örgjörfa með 4 mb flýtiminni í Acer vélinni.
Einnig er Packard vélin með 4 GB vinsluminni á móti 3 GB vinsluminni í Acel vélinni.
Að ég tali nú ekki um að Packard vélin er á betra verði.
Einnig er Packard vélin með 4 GB vinsluminni á móti 3 GB vinsluminni í Acel vélinni.
Að ég tali nú ekki um að Packard vélin er á betra verði.
Re: Fartölvukaup
já en svona fyrir utan það augljósa.. hvað með gæðastandard, bilanatíðni, stöðugleika og þessháttar
Re: Fartölvukaup
Mín regla er að reyna versla ekki fartölvu einungis frá tækniupplýsingum, ég myndi líklega fara í báðar verslanirnar og leggja hendur á vélina til að reyna skera úr um gæði smíðarinnar, sérstaklega hjarirnar á skjánum. Svo er gott að hafa í huga séu diskarnir í vélinni keyrðir saman í Raid 0 - þá aukast líkurnar á því að þú tapir öllum þínum gögnum komi eitthvað uppá eða fyrir, það er alveg sama hvað er til mikið af vörnum og góðum hörðum diskum þá er þetta alveg svakalega algeng -bilun- ef svo má kalla.
Fyrir sjálfan mig myndi ég vilja hvorugt, ef ég nauðsynleg yrði að velja þá yrði sá staður sem veitir mér betri þjónustu,upplýsingar fyrir valinu(svo lengi sem ég treysti smíði vélarinnar)
Fyrir sjálfan mig myndi ég vilja hvorugt, ef ég nauðsynleg yrði að velja þá yrði sá staður sem veitir mér betri þjónustu,upplýsingar fyrir valinu(svo lengi sem ég treysti smíði vélarinnar)
-
- ÜberAdmin
- Póstar: 1317
- Skráði sig: Fim 29. Nóv 2007 23:46
- Reputation: 5
- Staðsetning: Lýtó
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Fartölvukaup
Ef eitthvað annað kemur til greina þá mæli ég sterklega með IBM. Fartölvan mín er IBM og hefur nokkrum sinnum dottið í gólfið, og lent í fikti og ýmsu en er alveg djöfull góð ennþá eftir næstum 5 ár.
Mín skoðun er reyndar sú að það að kaupa góða fartölvu sé lélegasta fjárfesting í heimi.
Það sem mér finnst gáfulegast er að kaupa bara skítsæmilega fartölvu sem nýtist í það sem fartölva þarf að gera, Góða rafhlöðuendingu, duga í word, vefráp, vera létt og örugg. Leikirnir og erfiðu forritin eins og ps, eigi að fá borðtölvu þar sem þar kostar miklu minna að hafa góðan útbúnað og skjákort í fartölvum eru yfirleitt ekki mjög góð.
Þetta er mín skoðun.

Klám og stríð er undirstaða allrar tækni!